Reykjavík orðin dýrust miðað við aðrar höfuðborgir Sæunn Gísladóttir skrifar 8. september 2016 07:00 Reykjavík er í dýrari kantinum sem áfangastaður í Evrópu, miðað við hótelverð og verð á veitingastöðum. vísir/anton brink
Reykjavík er dýrasta höfuðborg í Evrópu sé litið til meðalverðs á stórum innlendum bjór, þriggja rétta máltíð, nætur á þriggja stjörnu hóteli og leigubílaferðar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, Komið þið fagnandi. Ferðaþjónusta á Íslandi: Uppgangur og áskoranir, sem var kynnt á opnum umræðufundi Samtaka atvinnulífsins í gær. Gengisstyrking krónunnar hefur leitt til hærra verðlags í ferðaþjónustu, og svo gæti farið að með áframhaldandi styrkingu krónunnar verði Ísland of dýr áfangastaður. „Það eru vísbendingar um að við séum í dýrari kantinum miðað við aðrar höfuðborgir. Í kjölfar efnahagshrunsins vorum við hlutfallslega mjög ódýr vegna veikingar krónunnar í evrum talið, en verðlagið hefur verið stígandi upp á við undanfarin árin. Bæði vegna aukinnar verðbólgu en einkum og sér í lagi vegna gengisstyrkingar krónunnar,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. „Það sem er sláandi er að við sjáum verulegar verðhækkanir á liðum tengdum ferðaþjónustu, eins og hótelum og veitingastöðum. Nokkrir þættir hafa þar áhrif. Í fyrsta lagi er ferðaþjónustan verulega útsett fyrir miklum launahækkunum enda vinnuaflsfrek grein, í öðru lagi hefur gengisstyrking krónunnar þau áhrif að við verðum dýrari í erlendum gjaldmiðlum. Í þriðja lagi þá hefur verið framboðsskortur einkum og sér í lagi á höfuðborgarsvæðinu sem hefur sitt að segja. Við sjáum að hótel og veitingastaðir eru dýrari í evrum en til að mynda fyrir 2008 og hlutfallslega dýrari í samanburði við evrusvæðið eða Noreg.“ Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins.mynd/saFram kemur í greiningunni að samkvæmt könnun Travelsat var fjórða algengasta ástæða sem ferðamenn tilgreindu fyrir að velja áfangastað að þeir hefðu fengið gott tilboð eða töldu áfangastaðinn ódýran. Því getur verðlag haft veruleg áhrif á val á áfangastað. Að mati Ásdísar gæti komið til þess að Ísland verði of dýr áfangastaður og það dragi úr fjölgun ferðamanna. „Áframhaldandi styrking á krónunni mun grafa undan samkeppnisstöðu greinarinnar og við verðum ennþá dýrari. Mikilvægt er að gæði og þjónusta standi undir slíkri verðlagningu, að öðrum kosti verður upplifun ferðamanna einfaldlega neikvæð.“ Að mati Ásdísar þarf að horfa á heildarmyndina, og tryggja samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar og annarra útflutningsgreina. „Ferðaþjónustan hefur verið í örum vexti og allt útlit fyrir að slíkur vöxtur verði áfram, a.m.k. í bili. Áframhaldandi styrking nafngengis, verulegar launahækkanir og hátt vaxtastig grefur hins vegar undan greininni. Horft fram á veginn þarf að vera skýrari stefna um framtíð ferðaþjónustunnar og tryggja að ferðaþjónustan geti starfað í heilbrigðu og stöðugu rekstrarumhverfi,“ segir Ásdís. Efnahagssviðið leggur til að launahækkanir taki mið af svigrúmi útflutningsgreina eins og ferðaþjónustunnar. Að skýr stefna verði um hvernig stjórnvöld ætli að tryggja sjálfbærni greinarinnar til langs tíma og hámarka arðinn af þessari nýju atvinnugrein. Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Íslenskur bjór Tengdar fréttir Samtök atvinnulífsins leggja til frjálsa gjaldtöku á ferðamannastöðum Markmið gjaldtökunnar væri að hámarka arð af auðlindum og stýra ágangi á þær. Gjaldtaka er betri lausn en náttúrupassi eða komugjald að mati SA. 7. september 2016 07:00 Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Sjá meira
Samtök atvinnulífsins leggja til frjálsa gjaldtöku á ferðamannastöðum Markmið gjaldtökunnar væri að hámarka arð af auðlindum og stýra ágangi á þær. Gjaldtaka er betri lausn en náttúrupassi eða komugjald að mati SA. 7. september 2016 07:00