Innlent

Á hælum Angelo dögum saman: „Hrein og klár tilviljun“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Íslendingurinn var ítrekað á sama stað og Angelo sem keyrði bílinn með fíkniefnunum.
Íslendingurinn var ítrekað á sama stað og Angelo sem keyrði bílinn með fíkniefnunum. vísir
Annar Íslendinganna sem ákærður er fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað að hluta innflutning á um 23 kílóum á sterkum fíkniefnum segir það hreina og klára tilviljun að hann hafi ítrekað verið staddur á sama stað og Angelo Uyleman, Hollendingur sem einnig er ákærður í málinu, á leið hans frá Seyðisfirði til Keflavíkur. Angelo flutti fíkniefnin hingað til lands og á milli landshluta en efnin voru falin í bíl af gerðinni Volkswagen Touran.

Íslendingurinn bar vitni fyrir dómi í gær en aðalmeðferð ákæruvaldsins gegn honum og þremur mönnum, öðrum Íslendingi og tveimur Hollendingum, hófst þá í Héraðsdómi Reykjaness. Saksóknari í málinu byrjaði á að spyrja hann út í ferðir hans dagana 21.-24. september en Angelo kom til Seyðisfjarðar með Norrænu þann 22. september og fór af landi brott tveimur dögum síðar.

Sjá einnig: Angelo breytti framburði sínum fyrir dómi

Var á bílastæðinu við Litlu kaffistofuna í tvo klukkutíma

Maðurinn viðurkenndi að hafa verið á Seyðisfirði þegar Angelo kom þangað. Hann kvaðst hafa farið austur í frí með konu sinni og þau höfðu verið á Seyðisfirði til að skoða sig um áður en þau fóru aftur í bæinn þar sem þau eiga minningar þaðan. Íslendingurinn var síðan á bílastæði við Litlu kaffistofuna að eigin sögn í um tvo klukkutíma en bíllinn með fíkniefnunum var þá einnig þar. Saksóknari spurði manninn hvers vegna hann hafi stoppað svona lengi á bílastæðinu.

Frá tollaeftirliti við Seyðisfjörð.Vísir
„Ég var bara að senda pósta, það er engin ástæða,“ sagði hann.

Daginn eftir, þann 24. september, var maðurinn svo á Keflavíkurflugvelli þegar Angelo var að fara úr landi. Hann hafði þá lagt bílnum með fíkniefnunum í á skammtímastæði á flugvellinum. Íslendingurinn var beðinn um að útskýra af hverju hann hefði farið til Keflavíkur.

Hann kvaðst hafa farið þangað til að hitta forritara vegna bókunarsíðu fyrir bílaleigur sem hann og hinn Íslendingurinn eiga. Þeir hafi svo farið á flugvöllinn til að kynna sér bílaleigurnar sem þar starfa.



Sjá einnig: Átti ekki von á fíkniefnum heldur peningum til sumarhúsakaupa


Ferðast ekki jafn mikið núna og þá

Saksóknari spurði hann svo hvernig á því gæti staðið að hann hefði ítrekað verið á sama stað og Angelo og þar með bíllinn með fíkniefnunum.

„Hvað varðar mig þá er þetta hrein og klár tilviljun,“ svaraði hann og bætti við að eftir hann losnaði úr gæsluvarðhaldi hefði hann séð aðra sakborninga í málinu reglulega. Hann var þá spurður hvort hann sæi þá líka á milli landshluta.

Angelo í Héraðsdómi Reykjaness í gærmorgun.Vísir/Ernir
„Ég ferðast nú ekki mikið núna, finnst það ekki þægilegt,“ sagði hann þá.

Daginn sem Angelo kom svo aftur til landsins var Íslendingurinn aftur kominn á Keflavíkurflugvöll. Aftur kvaðst hann hafa verið í sömu erindagjörðum; að skoða bílaleiguaðstöðuna auk þess sem systir hans var að koma til landsins þennan dag.

Hann hélt síðan til Reykjavíkur en kom við í Vogum á Vatnsleysuströnd til að stoppa hjá ömmu og afa en Angelo hélt að bænum Stóra Knarrarnesi, einmitt í Vogum, þar sem hann var handtekinn ásamt hinum Hollendingnum.

„Fullkomlega eðlilegt“ að eiga í dulkóðuðum samskiptum

Íslendingurinn var svo handtekinn skammt frá skömmu síðar með tvær milljónir króna í reiðufé og farsíma sem hægt var að eiga í dulkóðuðum samskiptum með.

Saksóknari bað manninn að útskýra fyrir dómnum hvernig síma hann hefði verið með.

„Ég veit það ekki. Bara einhver Blackberry-sími sem ég stend í að selja, eða sams konar sími,“ sagði hann.

Fram kom þá í máli saksóknara að síminn hefði ekki verið með hljóðnema og hefði innihaldið forritið Secure Chat. Hann bað Íslendinginn að útskýra hvers vegna það hefði verið.

„Þetta eru mjög dýrir símar og búnir þessu forriti, en þú getur líka náð í það á Google Play. Ég sel mikið af þessum símum og þeir eru mjög dýrir og ég á viðskiptum við búð í Hollandi með þá, Spy City.“

„Í hvað notar maður svona síma?“ spurði saksóknari þá.

„Í hvað notar þú símann þinn? Bara það sem maður notar síma í,“ sagði maðurinn.

„Ekki til að fela neitt?“ spurði saksóknari.

„Nei, það er bara eðlilegt að vilja hafa sitt „privacy“ í nútímaheimi. Fullkomlega eðlilegt.“

Aðalmeðferð málsins fer fram í Héraðsdómi Reykjaness.vísir/valli
Tæpar 1,5 milljónir í bílaleigubíla á fjórum mánuðum

Maðurinn var síðan spurður út í há útgjöld í tengslum við bílaleigubíla en samkvæmt gögnum málsins eyddi maðurinn 1,4 milljónum króna í bílaleigubíla á fjórum mánuðum. Þá var hann á tímabili með tvo bíla á leigu samtímis. Íslendingurinn sagði það henta sér betur að nota bílaleigubíla en að eiga bíl.

Aðspurður sagði hann fjárhagsstöðu sína vera ágæta en sagði að eftir handtökuna og farbannið væru hendur hans þó smá bundnar. Saksóknari spurði hann þá nánar út í fjárhagsstöðuna og hvort það væri ekki rétt að á tímabili hefði litið út fyrir að hann yrði gjaldþrota. Maðurinn kannaðist við það en útskýrði síðan að hann hefði verið að skoða það með lögfræðingi sínum hvernig hann hefði getað komið símasölunni í rétt horf þar sem hann hafði svartar tekjur af því.

iKortin til að eiga í viðskiptum með símana

Heima hjá manninum fundust síðan 25 iKort sem eru alþjóðleg inneignarkort. Hann kvaðst nota þau til að eiga í viðskiptum með símana við Spy City í Hollandi. Hinn Íslendingurinn sem ákærður er í málinu lagði peninga inn á kortin og var meðal annars tekið út af þeim í Amsterdam af starfsmönnum Spy City að sögn Íslendingsins.

Saksóknari spurði hann hvort hann kynni skýringar á því að hvers vegna einn af þeim sem tók út pening huldi andlit sitt.

Maðurinn kvaðst ekki vita það.

Þá var hann spurður út í milljónirnar tvær sem hann var handtekinn með í Vogum. Hann sagði um að ræða peninga sem hann hefði tekið út vegna símaviðskiptanna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×