Líkamsárás í Krónunni: Nefbrotinn og hyggst leggja fram kæru á miðvikudag Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 20. júní 2016 15:50 Maðurinn var beittur ofbeldi svo úr blæddi. Vísir
Maðurinn sem ráðist var á í Krónunni í gærdag er nefbrotinn og hyggst leggja fram kæru á miðvikudag. Þetta hefur Vísir eftir öruggum heimildum. Fyrr í dag var greint frá því að samkvæmt skýrslu lögreglu hefði maðurinn ekki reynst nefbrotinn. Ráðist var á manninn í grænmetisdeild Krónunnar í gær en annar maður kýldi hann eftir að hafa sakað hann um að hafa beitt vinkonu sína grófu ofbeldi. Mennirnir tókust á þar til viðskiptavinir verslunarinnar og starfsfólk drógu árásarmanninn af hinum og var hann leiddur út af kærustu sinni.Sjá einnig: Líkamsárás í Krónunni Granda Mikið blæddi úr manninum og töldu vitni sem Vísir ræddi við næsta víst að maðurinn hefði nefbrotnað, svo mikið lét hann á sjá. Eftir að hafa farið á slysadeild hefur komið í ljós að maðurinn er ekki aðeins nefbrotinn heldur er hann með áverka á auga eftir gleraugnabrot. Í skýrslu lögreglu kemur fram að farið verði með málið sem minniháttar líkamsárás en það merkir að fórnarlambið sé ekki með beinbrot. Það verður leiðrétt á miðvikudag þegar fórnarlambið heldur á fund lögreglu ásamt lögmanni sínum. Starfsfólki Krónunnar og viðskiptavinum var brugðið eftir atvikið en margt var um manninn í versluninni þegar atvikið átti sér stað. Þegar lögregla kom á staðinn voru fórnarlamb og gerandi á bak og burt en þó voru þeir báðir yfirheyrðir á öðrum stað í borginni.
Tengdar fréttir Hefur ekki lagt fram kæru vegna líkamsárásar í Krónunni Lögregla kom á staðinn og bæði gerandi og fórnarlamb voru á bak og burt. 20. júní 2016 14:09 Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Sjá meira
Hefur ekki lagt fram kæru vegna líkamsárásar í Krónunni Lögregla kom á staðinn og bæði gerandi og fórnarlamb voru á bak og burt. 20. júní 2016 14:09