Blóm og stórar slaufur stóðu uppúr hjá Gucci Ritstjórn skrifar 2. júní 2016 22:15 Þetta er í fyrsta skiptið sem að tískusýning er haldin í þessari sögufrægu kirkju. Myndir/Getty
Gucci sýndi cruise 2017 línuna sína í Westminister Abbey í London í dag við góðar viðtökur. Mikil spenna hefur verið fyrir sýningunni en þetta er í fyrsta skiptið tískusýning er sýnd í þessari sögufrægu kirkju. Alessandro Michele, yfirhönnuður Gucci, sagði að staðsetningin hafi skipt miklu máli fyrir línuna enda er hún innblásin af breskri menningu. Alessandro bjó lengi í London þegar hann byrjaði fyrst hjá fyrirtækinu fyrir næstum 15 árum en hann segist elska menninguna og fólkið. Línan einkennist af silkislæðum, blómamunstri, stórum jökkum, björtum og skemmtilegum litasamsetningum og að lokum pífum, sem er orðið eitt helsta einkennismerki Gucci frá því að Alessandro tók við fyrir næstum því tveimur árum. Fallega græn kápa með stórri rauðri slaufu og nælu. Stóru eyrnalokkarnir eru punkturinn yfir i-ið.Skemmtilegur laxableikur kjóll með pífum. Þessi stíll er orðinn einkennandi fyrir Gucci.Það var mikið um blómamunstur á sýningunni og ekki má gleyma Gucci beltunum.Falleg rauð loðkápa, silkiklútur í stíl, nóg af skartgripum og stór gleraugu. Einkennismerki Gucci.Blómamunstur og Gucci rendurnar passa vel saman.ASAP Rocky og Alexa Chung sátu á fremstu röð í Westminister AbbeySalma Hayek lét sig að sjálfsögðu ekki vanta.
Mest lesið Jólablað Glamour er komið út Glamour Tískuvikan í New York: Götutíska Glamour Ashley Graham er andlit haustherferðar Lindex Glamour Það er tískumyndakvöld í kvöld Glamour 10 atriði sem koma þér á óvart þegar þú eignast börn Glamour Grammy 2017: Best klæddu stjörnurnar Glamour Kendall veltir Gisele af toppnum Glamour Bambi á forsíðu Glamour Glamour Dragtir og litrík jakkaföt áberandi á rauða dreglinum Glamour Glitrandi gleði í eftirpartýi Golden Globe Glamour