Subaru Viziv jeppinn stærsti bíll Subaru frá upphafi Finnur Thorlacius skrifar 18. nóvember 2016 09:49 Subaru Viziv jeppinn kemur á markað árið 2018.
Subaru vinnur nú að þróun jeppa sem hefur vinnuheitið Viziv og er hann stærsti bíll sem Subaru hefur nokkurntíma smíðað. Hann er talsvert stærri en Tribeca jeppinn sem Subaru smíðaði áður og hætti svo að framleiða í fyrra vegna ónógrar sölu. Subaru ætlar ekki að gera sömu mistök aftur og með smíði Tribeca, en sá bíll var ekki nógu stór og rúmgóður fyrir stærsta markað Subaru, Bandaríkin og seldist fyrir vikið illa. Subaru Viziv verður með þrjár sætaraðir. Ytra útlit hans verður í ætt við aðrar gerðir Subaru bíla og ætti að þekkjast langar leiðir sem slíkur og forsvarsmenn Subaru segja hreint út að hann sé ekki djarflega teiknaður og alls ekki markmiðið að hafa hann framústefnulegan né sérlega fallegan. Skrítin orð þar, en bæta við að hann verði engu að síður kraftalegur og grófur útlits. Gott pláss á að vera fyrir fullorðna í þriðju sætaröð bílsins og að auki mikið farnagursrými, svo víst er að þessi bíll verður stór. Subaru ætlar að hefja sölu nýja jeppans árið 2018.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent