Vegur um Teigsskóg leysi af Ódrjúgsháls eftir 3-4 ár Kristján Már Unnarsson skrifar 25. maí 2016 20:45
Vegamálastjóri vonast til að vegagerð um hinn umdeilda Teigsskóg á Vestfjörðum verði boðin út fyrir áramót og að endurskoðun umhverfismats ljúki í sumar. Þetta kom fram í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í kvöld sem sjá má hér að ofan. Þetta virðist vera sagan endalausa, deilurnar um hvort Vestfjarðavegur um Gufudalsveit verði lagður um Teigsskóg. Þegar vegamálaráðherra síðustu ríkisstjórnar, Ögmundur Jónasson, sagði nei strunsuðu Vestfirðingar út á mótmælafundi á Patreksfirði.Húsmæður á Vestfjörðum mótmæltu með búsáhöldum á frægum fundi á Patreksfirði haustið 2011 þeirri stefnumörkun Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi innanríkisráðherra, að hafna vegi um Teigsskóg.Mynd/Egill AðalsteinssonEitt fyrsta verk eftirmanns hans, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, var að skoða skóginn með eigin augum og setja vegagerð um hann aftur í ferli en hún lenti fljótlega í hindrunum sem hún kallaði stjórnsýsluflækju. Núna, þremur árum síðar, sér vegamálastjóri fram á að greiðast sé úr flækjunni, það hylli undir nýtt umhverfismat eftir að Skipulagsstofnun heimilaði endurupptöku þess í fyrra. „Það er nýbúið að senda fyrstu drög að nýrri skýrslu til Skipulagsstofnunar til skoðunar. Við erum að vonast til þess að það verði í sumar sem að því formlega ferli lýkur, vonandi með jákvæðri niðurstöðu. Ef allt gengur eftir, sem við höfum verið að vonast eftir, þá væri hægt að fara af stað með það verkefni í framkvæmdum strax næsta vor,” segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri.Leiðin sem Vegagerðin vill fara með Vestfjarðaveg til að losna við Ódrjúgsháls og Hjallaháls.Þetta þýðir að bjóða þarf verkið út fyrir áramót. Veglínu um Teigsskóg hefur verið breytt frá því sem áður var. „Þannig að það er mun minna rask á skóginum, eða kjarrinu, núna heldur en í eldri línum. Að öðru leyti verður bara fylgt þeim línum yfir firðina sem áður var búið að hanna og undirbúa.” En í ljósi tíu ára deilna um Teigsskóg, er líklegt að tillagan nái núna í gegn? „Ég hef trú á því, já. Það þarf náttúrlega fyrst þetta umhverfismatsferli og síðan þarf framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar, sem ég held að verði nú ekki torsótt. Síðan þarf náttúrlega líka að ræða við landeigendur og fara í gegnum það ferli allt saman. En ég hef nú trú á því að þetta gangi upp, eins og við höfum verið að vonast til undanfarin misseri , og við getum farið að byrja þarna framkvæmdir á næsta ári.”Ekið niður Ódrjúgsháls í Gufudalssveit.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Gangi það eftir losna vegfarendur við tvo erfiða fjallvegi, um Ódrjúgsháls og Hjallaháls, eftir 3-4 ár. „Um svipað leyti eða jafnvel fyrr en Dýrafjarðargöngin opna, 2019 eða 2020, eitthvað svoleiðis. Þetta er stórverk,” segir vegamálastjóri um það hvenær hann búist við að nýi vegurinn verði tilbúinn.
Tengdar fréttir Vilja skoða sérlög á vegarlagningu um Teigsskóg Skipulagsstofnun hafnar tillögu Vegagerðarinnar um veg um Teigsskóg. Forseti Alþingis vill að þingið setji lög um vegarlagninguna. Formaður Byggðastofnunnar tekur undir. Skipulagsstofnun bundin að lögum, segir talsmaður stofnunarinnar. 17. september 2014 07:00 Vegur um Teigsskóg aftur í umhverfismat Skipulagsstofnun hefur fallist á beiðni Vegagerðarinnar um að endurskoða umhverfismat vegna hins umdeilda vegar um Teigsskóg í Þorskafirði. 27. maí 2015 09:09 Hanna Birna segir Teigskóg í stjórnsýsluflækju Þingmenn eru sammála um að það þoli enga bið að finna leið til lausnar vegabóta á sunnanverðum Vestfjörðum. Innanríkisráðherra segir til greina að setja lög vegna málsins. 22. september 2014 19:49 Jarðgöng til skoðunar efst á Dynjandisheiði Göngin yrðu stutt en tækju af snjóþyngsta og erfiðasta kaflann. 18. maí 2016 19:00 Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9. nóvember 2011 18:56 Dýrafjarðargöng komin í alþjóðlegt útboðsferli Vegamálastjóri reiknar með að framkvæmdir hefjist á næsta ári og að göngin verði tilbúin árið 2020. 11. maí 2016 20:15 Skógræktarmenn rífast um vernd Teigsskógar Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún tekur fram að hún styðji ekki yfirlýsingu stjórnar Skógræktarfélags Íslands um vegagerð um Teigsskóg. 16. október 2014 12:30 Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira
Vilja skoða sérlög á vegarlagningu um Teigsskóg Skipulagsstofnun hafnar tillögu Vegagerðarinnar um veg um Teigsskóg. Forseti Alþingis vill að þingið setji lög um vegarlagninguna. Formaður Byggðastofnunnar tekur undir. Skipulagsstofnun bundin að lögum, segir talsmaður stofnunarinnar. 17. september 2014 07:00
Vegur um Teigsskóg aftur í umhverfismat Skipulagsstofnun hefur fallist á beiðni Vegagerðarinnar um að endurskoða umhverfismat vegna hins umdeilda vegar um Teigsskóg í Þorskafirði. 27. maí 2015 09:09
Hanna Birna segir Teigskóg í stjórnsýsluflækju Þingmenn eru sammála um að það þoli enga bið að finna leið til lausnar vegabóta á sunnanverðum Vestfjörðum. Innanríkisráðherra segir til greina að setja lög vegna málsins. 22. september 2014 19:49
Jarðgöng til skoðunar efst á Dynjandisheiði Göngin yrðu stutt en tækju af snjóþyngsta og erfiðasta kaflann. 18. maí 2016 19:00
Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9. nóvember 2011 18:56
Dýrafjarðargöng komin í alþjóðlegt útboðsferli Vegamálastjóri reiknar með að framkvæmdir hefjist á næsta ári og að göngin verði tilbúin árið 2020. 11. maí 2016 20:15
Skógræktarmenn rífast um vernd Teigsskógar Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún tekur fram að hún styðji ekki yfirlýsingu stjórnar Skógræktarfélags Íslands um vegagerð um Teigsskóg. 16. október 2014 12:30