Afar mikill viðbúnaður vegna hryðjuverkaógnar á EM í Frakklandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. apríl 2016 06:00 Víðir Reynisson, öryggisfulltrúi KSÍ, í aðdraganda viðureignar karlalandsliðsins gegn Hollandi í Amsterdam síðasltiðið haust. vísir/óskaró
Öryggi þeirra sem koma að Evrópumótinu í knattspyrnu í Frakklandi í sumar hefur verið til mikillar umræðu í aðdraganda keppninnar, ekki síst í ljósi hryðjuverkanna sem voru framin í París í haust og Brussel fyrr í vetur. Víðir Reynisson er öryggisfulltrúi Íslands á EM í sumar en mótið hefst 10. júní og stendur yfir í einn mánuð. Íslenska A-landslið karla er að taka þátt í sínu fyrsta stórmóti frá upphafi og segir Víðir að umfangið í öryggisgæslu mótsins sé ekki nokkru líkt því sem Íslendingar hafa kynnst áður. „Við höfum átt keppendur á Ólympíuleikum og landslið á stórmótum í öðrum greinum. En ég tel að íslenskt íþróttafólk hafi ekki kynnst öðru eins í líkingu við það sem við munum upplifa í Frakklandi í sumar,“ sagði Víðir við Fréttablaðið í gær. Hann mun í dag halda til Frakklands að funda með frönsku lögreglunni og rýna í smáatriði sem lúta að dagskrá íslenska knattspyrnulandsliðsins í Frakklandi í sumar.Hryðjuverkin breyttu litlu Víðir og fulltrúar KSÍ hafa fundað reglulega með mótshöldurum og frönskum yfirvöldum síðan í haust um öryggismál. Frá fyrsta degi var ljóst að gríðarlega mikið umfang er með starfseminni og allt gert til að tryggja öryggi allra þeirra sem sækja mótið í sumar. Hann segir að hryðjuverkin í París og Brussel hafi í raun litlu breytt um öryggisaðgerðir á mótinu og undirbúning. „Hryðjuverkaógnin var alltaf hluti af áhættunni. Frakkarnir gerðu alltaf ráð fyrir henni í sínum plönum,“ segir hann. „Eftir hryðjuverkin sem við urðum vitni að í vetur voru allar áætlanir endurskoðaðar en í raun var komist að sömu niðurstöðu. Hryðjuverkaógnin var alltaf til staðar og er enn.“ Fyllsta öryggis verður gætt í kringum leikmenn og starfsmenn keppnisliðanna, sem og áhorfenda á leikdögum. En í hverri borg sem hýsir leiki verða sérstök svæði afmörkuð fyrir almenning sem getur fylgst með leikjum á risaskjáum – svokölluð Fan Zone. „Það verður afar umfangsmikil öryggisgæsla í kringum alla opinbera viðburði sem eru haldnir í tengslum við mótið – ekki bara leikina sjálfa,“ segir Víðir.Tímafrekt að komast á völlinn Fjölmargir Íslendingar munu leggja leið sína til Frakklands til að styðja við strákana okkar. Víðir segir að það verði ný reynsla fyrir langflesta þeirra að komast á leikina. „Á Íslandi erum við vön því að geta mætt á völlinn nokkrum mínútum fyrir leik en það er ljóst að það mun taka mun meiri tíma í Frakklandi. Það mun taka töluverðan tíma að fara í gegnum öll öryggisatriði. Bæði verður þess gætt að menn komist ekki inn með falsaða miða og ekki í leyfisleysi,“ segir Víðir og bætir við að ítarlegar leiðbeiningar verði gefnar út til stuðningsmanna um þessi mál innan skamms. Meðal þess sem hefur borið á góma í kjölfar hryðjuverkanna er sá möguleiki að leikir fari fram fyrir luktum dyrum, sé hryðjuverkaógn yfirvofandi. Víðir telur það afar ósennilegan möguleika. „Mér finnst þetta skrýtin umræða án þess að ég viti sérstaklega hvað menn hafi fyrir sér í þessum málum. Ég veit ekki hvað ætti að verða til þess að menn telji betra að spila fyrir luktum dyrum og hafa þá tugþúsundir áhorfenda á öðrum stöðum að horfa á leikinn,“ segir Víðir og bendir á að hryðjuverkamenn reyndu að komast inn á þjóðarleikvang Frakka þar sem heimamenn mættu Þjóðverjum í vináttulandsleik þann 13. nóvember sl. „Þá reyndu þessir menn að koma sér inn á völlinn en tókst ekki.“Mikil öryggisgæsla verður á EM í sumar.vísir/gettyFranska lögreglan stýrir aðgerðum Franska lögreglan mun hafa yfirumsjón með öllum öryggisaðgerðum fyrir íslenska landsliðið, í nánu samstarfi við KSÍ. Öryggisfulltrúinn Víðir Reynisson vildi þó ekki segja nánar frá því að svo stöddu hvernig staðið yrði að öryggisgæslunni. „Ég vil ekki fara út í nein smáatriði en lögreglan hefur yfirumsjón með aðgerðunum og fær einkafyrirtæki, líkt og Securitas, til aðstoðar,“ segir Víðir. Íslenska landsliðið verður í smábænum Annecy á afskekktu hóteli í útjaðri bæjarins. „Staðsetningin og aðkoman að hótelinu er góð hvað öryggið varðar. Ég á ekki von á öðru en að þægindin verði í fyrirrúmi fyrir strákana enda miðar öll okkar vinna að því að fótboltinn verði aðalatriði og að öryggismál trufli ekki þá dagskrá sem hefur verið hönnuð fyrir liðið.“
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Enski boltinn Kansas frá Kansas til Kansas Sport Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Glódís framlengir samninginn við Bayern Fótbolti Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Körfubolti Fleiri fréttir Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Sjá meira