Formúla 1

Formúla 1 hverfur aftur til fortíðar, til framtíðar

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ætli Lewis Hamilton tapi fluginu með breyttu fyrirkomulagi? Heimsmeistarinn hefur náð báðum ráspólum tímabilsins.
Ætli Lewis Hamilton tapi fluginu með breyttu fyrirkomulagi? Heimsmeistarinn hefur náð báðum ráspólum tímabilsins. Vísir/Getty
Formúla 1 mun snúa aftur til baka í gamla tímatökufyrirkomulagið. Þessi lending liðsstjóranna í málinu á að standa til framtíðar. Breytingin tekur strax gildi í kínverksa kappakstrinum.

Eftir mikið drama og nokkrar mismunandi tillögur að nýju tímatökufyrirkomulaginu. Allir ellefu liðsstjórarnir í Formúlu 1 hafa skrifað undir bréf sem sent var til Jean Todt, forseta FIA (Alþjóða Akstursíþróttasambandsins).

Fyrirhugaðri kosningu um svokallað meðaltals-fyrirkomulag hefur því verið aflýst. Bréf liðsstjóranna gerði það ljóst að öllum útgáfum af því fyrirkomulagi yrði ýtt út af borðinu. Þar af leiðandi gátu Jean Todt og Bernie Ecclestone ekkert annað en að fallast á óskir liðanna.

„Þegar einróma beiðni liðanna kom í dag, gátu Jean Todt, forseti FIA og Bernie Ecclestone, eigandi sjónvarpsréttar hafa samþykkt til að gæta hagsmuna heimsmeistarakeppninnar að stinga upp á því við stýrihóp F1 og Alþjóða akstursíþrótta ráðið að snú aftur til tímatökufyrirkomulagsins sem var notað 2015,“ sagði í yfirlýsingu frá FIA.

Breytingin mun gilda út tímabilið samkvæmt yfirlýsingunni. Breytingar verða íhugaðar fyrir tímabilið 2017 ásamt hugsanlegri endurskipurlagningu á allri keppnishelginni fyrir næsta tímabil.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton náði ráspól í Bahrein

Lewis Hamilton var fljótastur undir flóðljósunum í tíamtökunni fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Bahrein á morgun. Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji.

Nico Rosberg vann í Bahrein

Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í Formúlu 1 kappakstrinum í Bahrein. Kimi Raikkonen á Ferrari varð annar og Lewis Hamitlon varð þriðji á Mercedes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×