Leikjavísir

Nýr tölvuleikur þar sem maður bregður sér í hlutverk SDG, kemur sér undan fjölmiðlamönnum og forðast afsögn

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Annar tölvuleikurinn á skömmum tíma þar sem fyrrverandi forsætisráðherra er í aðalhlutverki.
Annar tölvuleikurinn á skömmum tíma þar sem fyrrverandi forsætisráðherra er í aðalhlutverki. Mynd/Skjáskot
Viðbrögðin við þeim pólitíska óróleika sem einkennt hefur síðustu daga eru eins mörg og þau eru misjöfn. Sumir mótmæla, aðrir grínast á Twitter og enn aðrir búa til tölvuleiki.

Stutt er síðan kom út leikur þar sem spilarar bregða sér í hlutverk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og eiga að reyna safna þér eins mikið af krónum og hægt en á sama tíma aðforðast RÚV og Pírata. Það er einnig hægt að fá sér kökusneið í leiknum.

Nú er kominn nýr áþekkur leikur þar sem spilarar bregða sér í hlutverk forsætisráðherrans fyrrverandi og reyna hvað þeir geta að forðast fjölmiðlamenn á borð við Helga Seljan, Jóhannes Kr. Kristjánsson og Heimi Má Pétursson. Markmiðið er einfalt, að forðast afsögn.

„Við erum í tölvunarfræðinámi í HR og áttum að gera leik og við ákvaðum að setja hann í skemmtilegan búning,“ sagði Bjartur Hafþórsson í samtali við Vísi um gerð leiksins.

Spila má leikinn hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×