Leikjavísir

UFC 2: Besti leikurinn hingað til

Samúel Karl Ólason skrifar
Ronda Rousey og Connor McGregor.
Ronda Rousey og Connor McGregor. Vísir/EA
UFC 2 er án efa betri en allir forverar sínir. Hann lítur og hljómar ótrúlega vel út og býður upp á fjölbreytta og skemmtilega spilunarmöguleika. Í leiknum eru fjölmargir bardagakappar, eins og okkar eigin Gunnar Nelson, auk annarra karaktera eins og Bruce Lee og Mike Tyson. „Stand-up“ hluti leiksins er frábær, en eins og áður reynist glíman í jörðinni manni erfið.

Þess vegna nýtur UFC 2 sín best þegar hann er spilaður á móti vinum, þar sem auðvelt er að sleppa því að fara í jörðina. Þá er einnig hægt að spila leikinn þar sem glímunni er sleppt.

Höggum hefur verið lítið verið breytt frá fyrsta leiknum, en vörnin er aðeins öðruvísi. Nú er hægt ýta á takka á réttum tíma til að verjast höggunum betur og gefa meiri tíma fyrir gagnárás.

Glíman er svipuð og í síðasta leik þar sem ýta þarf hægra prikinu í rétta átt til að sækja fram og verjast. Í fyrsta lagi tekur það töluverðan tíma og æfingu að átta sig almennilega á glímunni. Hvað virkar, hvar, hvernig og allt það. Glíman er frekar erfið og jafnvel leiðinleg, þar sem tölvan virðist eiga mun auðveldara með hana en mannlegir spilarar.

Sömu sögu er að segja af hengibrögðum. Það getur verið heiftarlega erfitt að venjast þeim og framkvæma þau.

Career mode gerir spilurum kleift að búa til sína eigin bardagakappa og jafnvel er hægt að nota myndavél til að nota manns eigin andlit á kappann. Sem er skemmtilegt. Þá er hægt að byggja kappann upp og gera hann betri og reyna að verða meistari í UFC. Sem er líka skemmtilegt.

Það sem er ekki skemmtilegt við Career mode, eru æfingar á milli bardaga sem nauðsynlegt er að gera til að byggja bardagakappann upp. Það er þó hægt að sleppa því seinna meir og fá sjálfkrafa hæstu einkunina sem þú hefur áður fengið og hjálpar það til.

Yfir heildina er UFC 2, eins og áður segir, skemmtilegur leikur sem lítur vel út. Hann er erfiðari en fyrri leikirnir og aðdáendur blandaðra bardagalista ættu alls ekki að verða fyrir vonbrigðum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×