Viðskipti erlent

Olíuverð lækkar áfram þrátt fyrir samkomulag

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá fundi ráðamanna Rússa, Sáda, Katar og Venesúela i dag.
Frá fundi ráðamanna Rússa, Sáda, Katar og Venesúela i dag. Vísir/EPA
Yfirvöld Rússlands og Sádi-Arabíu komust að samkomulagi í dag um að halda olíuframleiðslu landanna í því magni sem það var í janúar. Katar og Venesúela koma einnig að samkomulaginu. Það tekur þó einungis gildi ef aðrir olíuframleiðendur fylgi því einnig.

Þrátt fyrir að framleiðslan verði ekki aukin er hún enn nærri sögulegu hámarki á heimsvísu og lækkaði olíuverð áfram í dag. Íran kom þó ekki að viðræðunum, en með afnámi viðskiptaþvingana gegn landinu hafa þeir ákveðið að hækka olíuframleiðslu til muna.

Sjá einnig: Gera samkomulag um framleiðsluþak á olíu

Brent vísitalan er í 32,77 dollurum á tunnu og hráolía frá Bandaríkjunum er í 29,03 dollurum á tunnu. Í júní 2014 var tunnan á um 116 dollara, samkvæmt frétt BBC. Þessa miklu lækkun undanfarinna mánaða má rekja til offramleiðslu.

Samkvæmt Reuters ætla yfirvöld í Íran sér þó að ná aftur markaðshlutdeild sinni, sem þeir hafi misst á undanförnum árum. Þeir ætli ekki að draga úr framleiðslu né frysta hana. Olíuráðherra Venesúela mun ferðast til Íran á morgun og ræða við ráðamenn þar um framleiðsluna. Þá hafa yfirvöld í Írak gefið út að þau séu tilbúin til að framfylgja samkomulaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×