Formúla 1

Maldonado tapar sætinu í Formúlu 1

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Pastor Maldonado hefur á sér orð fyrir að fara óvarlega í akstri. Hér gengur hann burt frá klesstu Lotus bíl sínum í Kína.
Pastor Maldonado hefur á sér orð fyrir að fara óvarlega í akstri. Hér gengur hann burt frá klesstu Lotus bíl sínum í Kína. Vísir/Getty
Pastor Maldonado hefur staðfest að hann muni ekki taka þátt í Formúlu 1 í ár. Hann hefur misst sæti sitt hjá Renault til danska ökumannsins, Kevin Magnussen.

Magnussen var áður á mála hjá McLaren liðinu og ók allt tímabilið 2014 fyrir McLaren. Hann sinnti svo hlutverki þróunarökumanns á síðasta tímabili vegna koma Fernando Alonso til McLaren.

Maldonado gaf út yfirlýsingu fyrir skemmstu um brotthvarf sitt úr Formúlu 1.

„Eins og allir vita hafa á síðastliðnum dögum verið margar kjaftasögur í gangi um nánustu framtíð mína í Formúlu 1. Í dag verð ég að segja ykkur að ég verð ekki á ráslínunni á tímabilinu 2016,“ segir í yfirlýsingunni frá Venesúelabúanum.

„Ég vil þakka öllum sem hafa sent mér skilaboð og hafa sett sig í samband við mig til að lýsa yfir stuðningi. Ég er auðmjúkur yfir þeim stuðningi sem ég hef fengið og stoltur af frammistöðu minni sem ökumaður,“ segir einnig í yfirlýsingu ökumannsins.

„Ég vil þakka guði, fjölskyldu minni, styrktaraðilum, vinum, aðdáendum og öllum sem hafa hjálpað mér að gera þann draum að veruleika að vera fulltrúi Venesúela á hápunkti akstursíþróttanna. Sjáumst fljótt aftur,“ sagði Maldonado að lokum í yfirlýsingunni.

Maldonado hefur keppt fimm tímabil í Formúlu 1, fyrstu þrjú með Williams liðinu og tvö með Lotus liðinu sem Renault tók nýverið yfir.

Hinn þrítugi ökumaður hefur hafið 95 keppnir. Hann vann eina keppni, spænksa kappaksturinn 2012 fyrir Williams liðið.

Maldonado sem hefur á sér glannalegt orðspor vegna þess hversu oft hann lendir í samstuði á kappakstursbrautinni. Hann hafði mikinn stuðning PDVSA sem er ríkisolíufyrirtæki Venesúela. PDVSA styrkti ökumanninn um 46 milljónir dollara á ári. Slitnaði upp úr samningnum við Lotus eftir yfirtöku Renault.


Tengdar fréttir

Magnussen tekur sæti Maldonado hjá Renault

Kevin Magnussen, fyrrum ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 mun samkvæmt heimildum Autosport taka sæti Pastor Maldonado hjá Renault liðinu í Formúlu 1.

Pirelli vill sátt um dekkjastefnu

Pirelli telur að fundur sem verður í næstu viku með ökumönnum og liðum í Formúlu 1 sé afbragðs tækifæri fyrir íþróttina að ná sátt um stefnu í dekkjamálum.

Maldonado býst við betri Renault vél í ár

Pastor Maldonado, ökumaður Lotus liðsins býst við því að Renault vél ársins verði auðveldari í notkun en sú sem notuð var árið 2014, þegar Lotus notaði síðast vélar Renault.

Berger: Alonso er ekki lengur bestur

Gerhard Berger, fyrrum Formúlu 1 ökumaður segir að síðasta tímabil hafi eitt og sér breytt ásýnd tveggja bestu ökumannanna í Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×