Lífið

Borgarstjórinn tók sjóðheitan snúning á æfingu hjá Mamma Mia - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dagur B. og Brynhildur.
Dagur B. og Brynhildur. vísir
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, mætti á æfingu hjá leikhópnum sem vinnur að leiksýningunni Mamma Mia í Borgarleikhúsinu.

Dagur gerði sér lítið fyrir og tók rosalegan danssnúning með Brynhildi Guðjónsdóttur en hún fer með eitt af aðalhlutverkunum í sýningunni.

Hlynur Páll Pálsson, aðstoðarleikstjóri, náði þessu skemmtilega myndbandi í dag en Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstýrir verkinu. Hér að neðan má sjá þetta skemmtilega myndband. Dagur er með fínar hreyfingar.

Another day at the office... #mammamia #ABBA #borgarleikhúsið #borgarstjórinn

A video posted by Hlynur Pálsson (@hlaunpaul) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×