Samþykkja framkvæmdaáætlun um byggingu 214 nýrra hjúkrunarrýma Atli Ísleifsson skrifar 14. janúar 2016 10:21 Samkvæmt áætluninni verða byggð tvö ný hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu, annað í Reykjavík og hitt í Kópavogi. Vísir/Pjetur
Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir hefur fallist á framkvæmdaáætlun heilbrigðisráðherra sem felur í sér byggingu þriggja nýrra hjúkrunarheimila á næstu fimm árum. Alls verða hjúkrunarrýmin 214 talsins – í Reykjavík, Kópavogi og Árborg – og er nemur áætlaður heildarkostnaður framkvæmdanna 5,5 milljörðum króna. Þetta kemur fram í frétt á vef velferðarráðuneytisins og segist Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra afar ánægður með að geta loksins kynnt áætlunina. „Þetta er fyrsta skrefið í áætlunargerð sem ég mun að sjálfsögðu vinna með áfram í samræmi við skynsamlega forgangsröðun og þörf fyrir frekari uppbyggingu á landsvísu,“ segir Kristján Þór.164 ný rými á höfuðborgarsvæðinu og fimmtíu í ÁrborgSamkvæmt áætluninni verða byggð tvö ný hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu, annað í Reykjavík og hitt í Kópavogi. „Gengið verður til viðræðna við forsvarsmenn bæjarfélaganna tveggja um fyrirhugaða uppbygginu á næstunni. Á hjúkrunarheimilinu sem áformað er að byggja í Reykjvík verða 100 hjúkrunarrými en 64 á heimilinu í Kópavogi. Til viðbótar þessum rýmum má geta þess að framkvæmdir standa yfir við byggingu hjúkrunarheimilis á Seltjarnarnesi með 40 rýmum. Stefnt er að því að taka það í notkun á næsta ári.50 hjúkrunarrými á ÁrborgarsvæðinuÁætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma miðast við að reist verði hjúkrunarheimili með 50 rýmum á Árborgarsvæðinu. Að hluta til leysa þessi rými af hólmi eldri rými á svæðinu þar sem markmiðið er að bæta aðbúnað aldraðra en 15 rýmanna verða hrein viðbót við fjölda hjúkrunarrýma á svæðinu.Fjármögnun fyrirhugaðra framkvæmdaHjúkrunarheimili sem byggð hafa verið á síðustu árum hafa flest verið fjármögnuð með svokallaðri leiguleið þar sem sveitarfélögin standa að og fjármagna framkvæmdir en framlag ríkisins felst í leigugreiðslum sem telst ígildi stofnkostnaðar. Áætlunin sem hér er kynnt byggist aftur á móti á hefðbundinni fjármögnunarleið þar sem 40% stofnkostnaðar rennur úr Framkvæmdasjóði aldraðra, ríkissjóður greiðir að hámarki 45% og sveitarfélögin að lágmarki 15%. Áætlaður heildarkostnaður við uppbyggingu hjúkrunarheimilanna þriggja nemur 5,5 milljörðum króna,“ segir í fréttinni. Nánar má lesa um áætunina á vef ráðuneytisins.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira