Glamour

Fyrsta Glamourblað ársins komið út

Ritstjórn skrifar
Glamour/SiljaMagg
Janúarblað Glamour er mætt í verslanir, sjóðheitt úr prentvélunum.

Forsíðuna prýðir fyrirsætan Anniek Kortleve en myndina tók Silja Magg og stílisti var Ina Lekiewicz. Um förðun sá Ísak Freyr og hárið var í höndum Fabio Vivan. 

Fyrsta blað ársins er stútfullt af skemmtilegu efni. Gunnlaugur Guðmundsson, stjörnuspekingur með meiru rýnir í árið framundan, bæði hjá stjörnumerkjunum tólf og hvað sé framundan hér heima og erlendis.

Þá á ljósmyndarinn Kári Sverriss tvo þætti í blaðinu, tískuþátt og svo beautyþátt sem tekinn var hér á landi með íslensku teymi.

Baltasar Breki Samper er í viðtali, en hann hefur undanfarið vakið athygli fyrir hlutverk sín, bæði í sjónvarpsþáttunum Ófærð og Sporvagninum Girnd sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Við fengum álit nokkra sérfræðinga sem spáðu í spilin fyrir förðunartískuna á nýju ári, hvaða trend við megum kveðja og hvaða nýju trend við bjóðum velkomin.

Nú þegar kuldinn er hvað mestur verður húðin þurr og hárið rafmagnað. Hvað er til ráða? Svörin finnur þú í snyrtikafla Glamour.

Í tískuhlutanum er farið yfir hvaða föt er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum til að búa til góðan grunn. 

Ekki láta fyrsta blað ársins og jafnframt tíunda tölublað Glamour framhjá þér fara.





Forsíða janúarblaðs Glamour





×