Hlutabréf hækkuðu um tugi prósenta jón hákon halldórsson skrifar 6. janúar 2016 08:00 Marel og Icelandair hækkuðu mest af stóru félögunum í Kauphöllinni á árinu. visir „
Ávöxtun á innlendum hlutabréfamarkaði var frábær á síðasta ári og langt umfram það sem vænta má að jafnaði. Þar skiptir mestu máli ávöxtun tveggja af stærstu félögunum, Marel og Icelandair,“ segir Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka.Stefán Broddi Guðjónsson forstöðumaður greiningardeildar Arion Banka, segir ávöxtun á síðasta ári umfram það sem búast megi við alla jafna.Hann bendir þó á að mest hækkun hafi verið á bréfum Nýherja. Undir þetta tekur Jóhann Viðar Ívarsson, hjá greiningardeild IFS. „Við skulum ekki gleyma að hlutabréf í Nýherja, minnsta félaginu á aðallista, gáfu 260% ávöxtun á árinu og toppuðu alla aðra!“ Ávöxtun á íslenskum fjármálamarkaði, mæld með Markaðsvísitölu GAMMA, var 18,2% á nýliðnu ári. Allar vísitölur GAMMA hækkuðu á árinu og bar hlutabréfavísitalan hæstu ávöxtunina yfir árið eða 49,9%. Úrvalsvísitala Nasdaq Ísland OMXI8, sem lýsir verðþróun félaga með mestan seljanleika, hækkaði um 43,4 prósent. Jóhann Viðar segir að heilt yfir sé verðmæti íslenskra fyrirtækja á eðlilegum nótum miðað við aðra þá kosti sem fjárfestum bjóðist nú. Arnar I. Jónsson, hagfræðingur hjá hagfræðideild Landsbankans, telur líka að markaðsverðmæti sé frekar eðlilegt miðað við helstu kennitölur markaðarins. „Horft á helstu mælikvarða sem sýna eiga hvort um bólumyndun sé að ræða kemur í ljós að íslenski hlutabréfamarkaðurinn í heild er ekki farinn að sýna merki um yfirverðlagningu. Góður gangur er í hagkerfinu og gangi spár um hagvöxt eftir má gera ráð fyrir því að nýhafið ár verði gott á hlutabréfamarkaði, þó svo að við gerum kannski ekki ráð fyrir 40-50% hækkun,“ segir hann. Þrjú fyrirtæki voru skráð á markað á síðasta ári. Fyrri hluta árs voru það Eik og Reitir. Í haust bættist svo Síminn við. Spurður segist Stefán Broddi hafa í upphafi árs átt von á fleiri skráningum. „Ef horft er til baka þá hafa 12 félög verið skráð á markað frá árslokum 2011. Ég held að það sé harla gott. Mestu máli skiptir samt að félögin hafa staðið sig vel í upplýsingagjöf og fræðslu til fjárfesta og almennings,“ segir Stefán Broddi.Jóhann Viðar Ívarsson, sérfræðingur hjá IFS Greiningu, segir verðmæti fyrirtækja í tak við aðra kosti sem fjárfestum bjóðist.Jóhann Viðar segir að IFS hafi talið haustið 2014 að fyrrnefnd þrjú félög væru þau einu sem telja mætti nær öruggt að kæmu á markað á árinu 2015. „Svo það gekk eftir en við spáðum 3-5 skráningum á árinu. Venjan hefur verið sú á síðustu árum að nýskráningar hafa verið færri eða í neðri enda þess bils í fjölda sem greiningaraðilar hafa spáð. Svo þetta hefur gengið nokkuð hægt fyrir sig á Kauphöllinni,“ segir Jóhann Viðar. Viðmælendur Markaðarins búast við góðu ári fram undan. Hafinn er undirbúningur á sölu 30 prósent hlutar í Landsbankanum. Talið er víst að sú viðbót muni hafa mikil áhrif. Verðmæti hlutar í bankanum muni hlaupa á tugum milljarða króna. Það sé nóg til að valda talsverðri breytingu á hlutfalli eftirspurnar og framboðs á markaðnum. Því þurfi að vanda söluferlið vel og passa að selja ekki of mikið í einu. „Hins vegar er vel heppnuð skráning bankans, sem og annarra banka, líkleg til að auka enn frekar áhuga á hlutabréfum sem fjárfestingu og efla markaðinn,“ segir Jóhann Viðar. Í sama streng tekur Stefán Broddi. „Ég hugsa að sala á eignarhlut í bönkunum þremur muni hafa heilmikil áhrif á íslenskan hlutabréfamarkað á næstu misserum og áhrifin verða ekki einvörðungu bundin við hlutabréfamarkaðinn.“
Tengdar fréttir Veltan jókst um 34% milli 2014 og 2015 "Myndarleg aukning varð í viðskiptum á bæði hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði á árinu sem er að líða,“ segir Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskiptasviðs Kauphallar Íslands, Nasdaq Iceland, um viðskiptin á árinu 2015. 4. janúar 2016 07:00 Mest lesið Gátu ekki fært sönnur á fullyrðingar um virkni sveppadropa og dufts Neytendur Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein Viðskipti innlent Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Olíuefni í Bugles sem eiga ekki að vera í snakkinu Neytendur Kvartanir borist vegna aflýstra flugferða Neytendur „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Viðskipti innlent „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Verðbólgan úr 3,8 prósentum í 4,2 prósent Alltof margir sem sitja eftir með sárt ennið Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sjá meira
Veltan jókst um 34% milli 2014 og 2015 "Myndarleg aukning varð í viðskiptum á bæði hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði á árinu sem er að líða,“ segir Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskiptasviðs Kauphallar Íslands, Nasdaq Iceland, um viðskiptin á árinu 2015. 4. janúar 2016 07:00
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf