Bílablaðamaður Autocar að aka hringinn á Mazda MX-5 núna Finnur Thorlacius skrifar 14. september 2016 16:30 Mazda MX-5 á klakanum og bíllinn með stýrið vitlausu megin.
Á vefsíðu Autocar má nú sjá ferðasögu blaðamanns sem er núna að aka hringinn í kringum Ísland á litla sportbílnum Mazda MX-5. Á skrifum hans sést að hann vill engan veginn setja upp blæju bílsins þó kalt sé. Ástæða þess er svo hann missi ekki af neinu af fegurð landsins og hann virðist í heild uppnuminn af því sem hann hefur þegar séð. Meiningin er að fara hringinn á um 40 klukkustundum og á hverjum klukkutíma berast færslur frá honum á vef Autocar. Af myndum af dæma sem teknar voru við upphaf ferðar virðist sem um marga Mazda MX-5 bíla sé að ræða í ferðinni, sem og fleiri Mazda bíla annarra gerða. Því gæti hér allt eins verið um að ræða skipulagða ferð Mazda með bílablaðamenn víðs vegar að.Verið að gefa fáknum að drekka.Blaðamaðurinn stoppar víða og segir að fegurð landsins sé því til hundrunar að komast leiðar sinnar.Þrír Mazda MX-5 í upphafi ferðar.
Mest lesið „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira