
Hefði Ólafur Ragnar átt að undirrita þingrofsbeiðnina?
Við heyrðum bara aðra hlið málsins, þar sem núverandi forseti kvað þáverandi forsætisráðherra, Sigmund Davíð, hafa komið til Bessastaða með beiðni um þingrof í farteskinu og ætlað að nota hana til að þvinga fram stuðning hjá samstarfsflokknum. Það þarf klækjaref til að þekkja annan klækjaref.
En var þetta raunin? Á kannski orðatiltækið „Margur heldur mig sig“ betur við, þar sem forsetinn ætlaði forsætisráðherranum eitthvað sem hann sjálfur hefði gert, en var kannski langt frá því sem ráðherrann sjálfur hugðist gera?
Sigmundur hefur neitað að plaggið hafið verið meðferðis og án þess að bera í bætifláka fyrir hann getum við gefið okkur að það hafi verið fálmkennd viðbrögð manns eftir óþarflega opinbera niðurlægingu af hálfu læriföður.
En í hverra þágu samþykkti forsetinn ekki þingrofsbeiðnina svo hægt væri að slíta þingi og boða til nýrra kosninga? Ekki í þágu fólksins sem var löngu hætt að styðja ríkisstjórnina og hafði í marga mánuði óskað eftir kosningum vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í stjórnarskrármálinu. Ekki heldur til að stuðla að friði í samfélaginu, því nýja ríkisstjórnin vekur enn meiri ólgu og reiði meðal kjósenda. Og ekki í þágu stjórnarandstöðunnar sem var tilbúin með vantrauststillögu á ríkisstjórnina.
Hverra erinda gengur þá forseti vor? Á forsetinn ekki að vera öryggisventill þjóðarinnar gagnvart Alþingi? Á forsetinn ekki einmitt að nýta þau úrræði sem hann hefur til að framfylgja ósk meirihluta þjóðarinnar? Að minnsta kosti þar til hin nýja stjórnarskrá verður samþykkt og þjóðin getur sjálf lagt fram frumvörp á Alþingi og þar með vantrauststillögur. Hvar var hollusta forseta nú gagnvart þjóðinni? Þessi hollusta sem hann sýndi svo berlega þegar hann bjargaði þjóðinni frá Icesave skuldinni. Er forsetinn kannski búinn að gleyma þjóðinni?
Var sjónarspil forseta kannski einungis til þess fallið að upphefja sjálfan sig fyrir heimsbyggðinni á kostnað þáverandi forsætisráðherra með því að upplýsa um hina meintu refskák? Eða var það til að endurheimta traust þjóðarinnar þar sem hann lét sem hann hefði bjargað henni frá því að þurfa að fara í kosningar með svo stuttum fyrirvara?
Ótti við hið óþekkta er þekkt stjórntæki hjá þeim sem vilja halda völdum. Þeir nýta sér ótta óbreyttra borgara við óvissuástand og snöggar breytingar því þeir vita ekki hvað þeir fá í staðinn. En það er oft þegar ráðamenn eru teknir í bólinu eins og nú að mestu umbæturnar eiga sér stað.
Hvað hefði verið svona hræðilegt við að ganga til kosninga núna? Píratar hefðu líklega unnið stórsigur, nýja stjórnarskráin hefði þá komist í gegnum þingið og aftur hefði þurft að slíta þingi og boða til kosninga. Hefði það verið heimsendir? Aldeilis ekki.
Landið hefði aldrei rekið stjórnlaust að feigðarósi þótt þing hefði verið rofið. Ráðuneytin geta vel starfað að sínum málum í nokkra mánuði án ráðherra enda hæft fólk þar innanborðs. Það hefði líka verið hægt að skipa fagráðherra á meðan kosningar væru undirbúnar. Kannski hefði verið kjörið tækifæri til að mynda þjóðstjórn. Í krísuástandi eins og nú virka þjóðstjórnir vel til að allir flokkar geti unnið saman að heill lands og þjóðar.
Kannski vill núverandi forsetinn ekki að upp úr stjórnarsamstarfinu slitni því hann er mótfallinn hinni nýju stjórnarskrá sem skerðir vald hans. Kannski Guðni Th. leiði einhvern tímann sannleikann í ljós.
Klækir, undirferli, baktjaldamakk, hroki, spilling, fals og óttastjórnun tilheyra fortíðinni. Manneskja getur verið góður forseti þótt hún sé ekki bragðarefur. Það er hægt að vera klár án þess að vera slóttugur og undirförull. Forseti á miklu frekar að endurspegla þá nýju tíma sem við siglum inn í. Vera sönn, heilsteypt, umburðarlynd og með heyrnina í lagi svo hún heyri í þjóðinni.
Ég trúi því að við getum þróað hér lýðræðisríki þar sem ríkir gagnsæi, réttlæti, jöfnuður, samkennd og skilningur. Þar sem völdin eru hjá fólkinu og að lýðræði virkt á borði, ekki bara í orði.
Okkur er smám saman að takast að stinga á kýlum spillingar, græðgi og sjálftöku og eftir því sem hreinsast út getum við byggt upp samfélag á trausti, heilindum, virðingu og samkennd.
Skoðun

Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu?
Grétar Birgisson skrifar

Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það?
Davíð Bergmann skrifar

Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans
Vésteinn Ólason skrifar

Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska?
Júlíus Valsson skrifar

Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna
Jón Þór Ólafsson skrifar

Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag
Davíð Aron Routley skrifar

Dæmt um efni, Hörður
Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda
Matthías Arngrímsson skrifar

Sóvésk sápuópera
Franklín Ernir Kristjánsson skrifar

Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum?
Anton Guðmundsson skrifar

Dæmir sig sjálft
Jón Pétur Zimsen skrifar

Mega blaðamenn ljúga?
Páll Steingrímsson skrifar

Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Hvað hefur áunnist á 140 dögum?
Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar

Samstarf er lykill að framtíðinni
Magnús Þór Jónsson skrifar

Kjarnorkuákvæði?
Dagur B. Eggertsson skrifar

Hver erum við? Hvert stefnum við?
Arnar Þór Jónsson skrifar

Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu
Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar

Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan!
Íris Björk Hreinsdóttir skrifar

Hugtakið valdarán gengisfellt
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ábyrgðin er þeirra
Vilhjálmur Árnason skrifar

Dæmt um form, ekki efni
Hörður Arnarson skrifar

Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk
Sævar Þór Jónsson skrifar

Um fundarstjórn forseta
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hjálpartæki – fyrir hverja?
Júlíana Magnúsdóttir skrifar

Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar
Matthías Arngrímsson skrifar

Áform um að eyðileggja Ísland!
Jóna Imsland skrifar

Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins
Grímur Atlason skrifar

Tekur ný ríkisstjórn af skarið?
Árni Einarsson skrifar

Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir
Árni Björn Kristbjörnsson skrifar