Gunnar í Krossinum ætlar að sýna predikaranum hvar Davíð keypti ölið Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. apríl 2016 17:52 Gunnar Þorsteinsson hefur ritað Steven Anderson bréf. Mynd/Anton/Skjáskot
Gunnar Þorsteinsson, oft kenndur við trúfélagið Krossinn, er ekki sammála predikaranum Steven Anderson sem lét Ísland og Íslendinga fá það óþvegið í predikun í baptistakirkjunni Faithful Word í Arisóna-ríki í Bandaríkjunum á dögunum. Gunnar hefur ritað honum bréf og ætlar Gunnar að eigin sögn að „gera honum grein fyrir því hvar Davíð keypti ölið.“ Myndband af predikuninni hefur vakið mikla athygli en þar kallar hann Ísland meðal annars „bastarðaþjóð“ og „femínistahelvíti.“ Gunnar Þorsteinsson ræddi við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni um predikunina og segist hann ekki vera sammála aðferðum Anderson. „Þetta er náttúrulega ekki með þeim hætti sem við boðum fagnaðarerindið. Tölulega er þetta kannski rétt en útlagning er kolröng. Hér blómstrar ástin og verður oft til þess að kærleikurinn ber ávöxt,“ sagði Gunnar um þá fullyrðingu Anderson um að Ísland ætti heimsmet í barneignum utan hjónabands.Sjá einnig: „Við þurfum að snúa aftur til siðferðis Biblíunnar svo að við verðum ekki bastarðaþjóð líkt og Ísland“Aðspurður hver væri tilgangurinn í því að nýta sér Ísland í predikun í Arizona-ríki var Gunnar með svarið á reiðum höndum. „Það sem hann gerir í raun er að nota okkur, saklausa Íslendinga, sem víti til varnaðar fyrir Bandaríkjamenn. Ef menn girði sig ekki í brók þá muni fara fyrir þeim eins og okkur, að þeir verði þjóð „bastarða“,“ segir Gunnar. Gunnar segist hafa ritað prestinum bréf til þess að láta hann vita að hann væri orðinn frægur á Íslandi og á allt eins von að hann láti sjá sig hér á landi til þess að ítreka boðskap sinn. Gunnar hefur ekki enn fengið svar til baka en ætlar að halda áfram að reyna að ná sambandi við Anderson. „Ég ætla að ná sambandi við hann og gera honum grein fyrir því hvar Davíð keypti ölið,“ segir Gunnar.Hlusta má á viðtalið við Gunnar í heild sinni hér að ofan en hér að neðan sjá má predikun Anderson sem vakið hefur mikla athygli.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira