Tekjur Apple dragast saman Birgir Olgeirsson skrifar 26. apríl 2016 22:09 Apple seldi 51,2 milljónir iPhone-síma á öðrum ársfjórðungi þessa reikningsárs en á sama tíma í fyrra seldi fyrirtækið 61,2 milljónir síma. Vísir/EPA
Tæknirisinn Apple hefur boðað 13 prósenta samdrátt á tekjum sínum á öðrum fjórðungi reikningsárs fyrirtækisins. Er þessi samdráttur rakinn til minni sölu á iPhone-símum. Er þetta í fyrsta sinn frá árinu 2003 sem salan hjá Apple dregst saman. Eru tekjur fyrirtækisins á þessum öðrum ársfjórðungi sagðar nema 50 milljörðum Bandaríkjadollara, samanborið við 58 milljarða Bandaríkjadollara á sama tíma í fyrra. Apple seldi 51,2 milljónir iPhone-síma á öðrum ársfjórðungi þessa reikningsárs en á sama tíma í fyrra seldi fyrirtækið 61,2 milljónir síma. Salan í Kína var dræm og dróst saman um 26 prósent, að því er fram kemur á vef fréttastofu breska ríkisútvarpsins BBC. Tim Cook, forstjóri Apple, segir fyrirtækið hafa staðið sig vel andspænis efnahagslegum mótbyr. Hagnaður fyrirtækisins fór úr 13,5 milljörðum Bandaríkjadala frá sama tímabili í fyrra í 10,5 milljarða í ár.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira