Forstjórinn segir Landsvirkjun bjóða gott verð á raforku Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. febrúar 2016 07:00 Norðurál á Grundartanga. Hörður segir að ef ekki náist að semja muni aðrir aðilar líklegast kaupa orkuna til lengri tíma. vísir/ernir
Eftirspurn eftir raforku eykst mikið og Landsvirkjun getur ekki annað heildareftirspurn iðnaðar eins og sakir standa. Þetta kom fram í máli Harðar Arnarssonar, forstjóra Landsvirkjunar, á uppgjörsfundi sem fram fór í gærmorgun. Hann sagði að eftirspurnin væri meiri en hefði sést áður á Íslandi. Hörður sagði að þessi mikla eftirspurn væri mjög sérstök í því efnahagsumhverfi sem ríkir í heiminum í dag. Almennt væri lítið um fjárfestingar og orkuverð í heiminum væri lágt. „Þetta staðfestir alveg samkeppnishæfni okkar. Sumir vilja halda það að við séum að verðleggja okkur of hátt. En þegar staðan er þannig að eftirspurnin er meiri en framboðið þá myndu flest markaðslögmál segja að við værum frekar að verðleggja okkur of lágt,“ sagði hann.Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.Hörður benti á að tveir nýir kaupendur væru að koma inn í viðskiptavinahópinn, annars vegar United Silicon í Helguvík og hins vegar PCC á Bakka. Þá sé uppbygging í gagnaverum mikil viðbót en sala á markaðnum til gagnavera er nú í heild 30 megavött á ári. „Síðan er vöxtur í almenna markaðnum og að mati Orkustofnunar er sá vöxtur um sex til tólf megavött á ári,“ sagði Hörður. Það væri því fjölbreytt eftirspurn frá litlum og meðalstórum fyrirtækjum Hörður sagði að verið væri að mæta aukinni eftirspurn með þremur nýjum virkjanaframkvæmdum; Búðarhálsvirkjun, Þeistareykjavirkjun og stækkun Búrfellsvirkjunar. „Við myndum gjarnan vilja að fleiri væru að byggja virkjanir á Íslandi. En frá árinu 2008 erum við eina fyrirtækið sem hefur byggt eitthvað upp. Það væri mjög gott fyrir markaðinn ef fleiri væru að styðja við eftirspurnina.“ Hörður segir unnið að því að endursemja við viðskiptavini. Þar séu samningar við Elkem á Íslandi og Norðurál sem þurfi að endurnýja fyrir árið 2019. Hörður segir að ef ekki náist að semja við Norðurál og Elkem verði líklegast umframframboð á raforku í einhvern tíma. „En þetta eru ekki mjög stórir samningar,“ segir Hörður. Hann bætir því við að það séu að koma aðilar inn á markaðinn sem kynnu að hafa áhuga á að kaupa þá orku sem yrði þá afgangs. „En ég endurtek samt, að áformin eru skýr, að endursemja.“
Mest lesið Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira