Fyrirtæki vilja klæðskerasaumað leiguhúsnæði fyrir starfsemi sína 30. janúar 2016 14:00 Andri og Halldór segja ýmsa möguleika vera til staðar fyrir leigutaka til að breyta leiguhúsnæði eftir sínu höfði. Vísir/Stefán
KYNNING - Dagar einhæfra skrifstofa eru liðnir, nú keppast stórir vinnustaðir erlendis um að geta boðið starfsfólki upp á frumlegt og fallegt umhverfi. Reitir fasteignafélag tekur virkan þátt í þessari þróun hér heima með því að aðlaga húsnæði að þörfum leigutaka. „Það er oft þannig að fólk er að leita sér að atvinnuhúsnæði til leigu á fasteignavefunum og finnur ekkert við sitt hæfi þar eða finnst það þurfa að gera of mikið til að húsnæðið henti og hættir þá kannski við að skoða viðkomandi húsnæði. Reitir hafa undanfarið mikið verið í því að breyta húsnæði sem leigt er til viðskiptavina og þannig opnast nýir möguleikar,“ segir Andri Þór Arinbjörnsson, framkvæmdastjóri eignaumsýslusviðs Reita.Bókasafninu í Spönginni var breytt og samanstendur nú mestmegnis af stórum, björtum opnum rýmum og er það mikil lyftistöng fyrir Spöngina.Halldór Jensson, sölustjóri Reita, er sá sem gerir samninga við nýja viðskiptavini og kemur að fyrstu skrefum breytinganna. „Leigutakar geta séð um breytingar sem þeir vilja gera á húsnæðinu í samráði við okkur en oft sjáum við alfarið um þær. Þá stjórnum við framkvæmd breytinganna, við vinnum með hönnuðum og leigutaka í sameiningu, ráðum verktaka og iðnaðarmenn og skilum húsnæðinu að lokum til leigutaka í því ástandi sem þeir vilja. Leigutakar þurfa því ekki að sjá af sínum tíma eða starfsfólks síns frá daglegum störfum í að fylgja breytingunum eftir,“ útskýrir Halldór. Leigutakinn þarf oft ekki að leggja út fyrir framkvæmdakostnaði. „Oft hentar það viðskiptavinum okkar betur að Reitir fjármagni breytingarnar á húsnæðinu, þá er framkvæmdakostnaði dreift yfir leigutímann, náist samkomulag um slíkt. Vissulega er ástand fasteigna og umfang breytinganna sem óskað er eftir mjög misjafnt þannig að hvert verkefni er metið sérstaklega,“ segir Andri.Fyrirtækin sem Reitir hafa séð um breytingar á húsnæði fyrir eru af öllum stærðum og gerðum.Fyrirtækin sem Reitir hafa séð um breytingar á húsnæði fyrir eru af öllum stærðum og gerðum. Skemmtileg dæmi um það eru bókasafnið í Spönginni, það húsnæði hýsti áður líkamsræktarstöð, stórir sturtukjarnar voru fjarlægðir og veggjaskipan breytt. Nú er bókasafnið mestmegnis stór björt opin rými sem eru mikil lyftistöng fyrir Spöngina. Okkar líf fluttu á síðasta ári á endurnýjaða hæð í Kauphallarhúsnæðinu. Þar er glæsilegt útsýni og staðsetningin er óviðjafnanleg. Áður en Reitir tóku þar til hendinni með Okkar líf voru þar ónýt gólfefni og opið loft með sýnilegu loftræstikerfi og öðru. Auk þess var herbergjaskipan óhefðbundin. Eftir breytingar sem unnar voru í nánu samstarfi við Okkar líf og hönnuði er hæðin óþekkjanleg.
Mest lesið Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Viðskipti Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Afsláttardagar skýri skyndilega hækkun bensínverðs Neytendur Fleiri fréttir Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent