Íslenskan á að njóta vafans Eiríkur Rögnvaldsson skrifar 16. janúar 2016 07:00 Því er oft haldið fram að íslenskan standi vel um þessar mundir, og hafi jafnvel aldrei staðið sterkar. Sem betur fer er mikið til í þessu – íslenska er notuð á öllum sviðum þjóðlífsins; í stjórnkerfinu, í menntakerfinu, í verslun og viðskiptum, í fjölmiðlum, í menningarlífinu, og í öllum daglegum samskiptum fólks. En þótt staðan virðist þannig sterk á yfirborðinu er hún brothætt – það þarf ekki mikið til að fari að molna úr undirstöðunum. Álag á íslenskuna hefur nefnilega vaxið mjög mikið á undanförnum fimm árum eða svo og mun fyrirsjáanlega aukast enn á næstunni. Fyrir því eru ýmsar ástæður en þær helstu eru: Snjalltækjabyltingin. Flestir Íslendingar, a.m.k. yngra fólk, eiga snjallsíma eða spjaldtölvur nema hvort tveggja sé. Í gegnum þau tæki er fólk sítengt við alþjóðlegan menningarheim sem er að verulegu leyti á ensku, þar er fólk að spila leiki á ensku, horfa á myndefni á ensku o.s.frv. Notendur þessara tækja eru sífellt með þau á lofti og þannig hefur áreiti frá hinum enskumælandi heimi stóraukist. YouTube- og Netflix-væðingin. Nær allir Íslendingar eru nettengdir og hafa þannig aðgang að ótakmörkuðu myndefni á YouTube, Netflix og öðrum efnisveitum. Búast má við að notendum Netflix fjölgi verulega nú þegar það er opinberlega í boði á Íslandi. Líklegt er að börn og unglingar séu stór hluti neytenda þessa efnis sem vitaskuld er allt ótextað.Ferðamannastraumurinn Fjölgun ferðamanna hefur haft mikil áhrif bæði í viðskiptalífinu og menningarlífinu. Verslanir leggja sífellt meiri áherslu á að höfða til útlendinga með auglýsingum og vörumerkingum á ensku, og sleppa jafnvel íslenskunni. Menningarviðburðir af ýmsu tagi fara einnig í auknum mæli fram á ensku til að ná til ferðamanna. Fjölgun innflytjenda. Búast má við að fólki með annað móðurmál en íslensku fjölgi verulega á næstu árum. Þar er annars vegar um að ræða hælisleitendur og flóttamenn, og hins vegar fólk í atvinnuleit. Nýlega kom fram í fréttum að þörf væri á stórfelldum innflutningi vinnuafls á næstu árum, þannig að búast mætti við því að 15% íbúa landsins yrði af erlendum uppruna árið 2030. Alþjóðavæðingin. Breytt heimsmynd hefur leitt til þess að fólk er hreyfanlegra en áður og íslenskir unglingar sjá ekki framtíð sína endilega á Íslandi. Í nýlegri könnun kom fram að helmingur 15-16 ára unglinga á Íslandi vill búa erlendis í framtíðinni (var þriðjungur fyrir hrun). Ekki er ótrúlegt að þetta hafi áhrif á viðhorf unglinga til íslenskunnar sem þeir vita að gagnast þeim lítið erlendis. Allt er þetta mjög jákvætt, út af fyrir sig. Það er gott að fólk eigi kost á fjölbreyttri afþreyingu og samskiptum, ferðamannastraumurinn er kærkomin innspýting í efnahagslífið, fjölgun innflytjenda vinnur gegn lækkandi fæðingartíðni og eykur fjölbreytni þjóðlífsins, og vitanlega er frábært að æska landsins skuli eiga kost á því að sækja sér menntun og atvinnu hvert sem hana lystir og búa erlendis um skemmri tíma eða til langframa. Það er heldur ekki nema gott um það að segja að Íslendingar læri ensku sem yngstir og sem best því að hún er vitanlega lykill að svo mörgu.Álag og þrýstingur á íslenskuna En þetta skapar mikið álag og þrýsting á íslenskuna. Til að verða öruggir málnotendur þurfa börn og unglingar að hafa mikla íslensku í öllu málumhverfi sínu. Sá tími sem varið er í afþreyingu, samskipti og störf á ensku er að mestu leyti tekinn frá íslenskunni. Við það bætist að bóklestur á íslensku, sem er ein mikilvægasta aðferðin til að efla kunnáttu í málinu og tilfinningu fyrir því, hefur minnkað verulega á undanförnum árum, a.m.k. meðal ungs fólks. Rasmus Rask spáði því árið 1813 að íslenskan yrði liðin undir lok í Reykjavík að 100 árum liðnum, og á öllu landinu eftir 200 ár þar frá – „ef ekki verða rammar skorður við reistar“, sagði hann. Það var einmitt það sem hann og aðrir gerðu næstu árin, reistu rammar skorður, þannig að íslenskan er enn notuð í Reykjavík eins og annars staðar á landinu. Enn er þó ekki útséð um að seinni hluti spádómsins rætist, þ.e. að íslenska verði horfin af landinu öllu árið 2113. Íslenska deyr ekki út á næstu fimm eða tíu árum – og ekki á næstu áratugum, held ég. Hún hefur góða möguleika á að standast þann þrýsting sem hún verður nú fyrir og lifa fram yfir 2113, og vonandi gerir hún það. En til þess þarf hún stuðning, og fyrsta skrefið er að málnotendur – og stjórnvöld – átti sig á þeim gífurlegu breytingum sem hafa orðið á umhverfi og aðstæðum íslenskunnar á örfáum árum, og til hvers þær gætu leitt. Það er vissulega útilokað að segja til um langtímaáhrif þessara breytinga, en íslenskan á að njóta vafans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun