Gunnar Bragi afléttir þvingunaraðgerðum gegn Íran Atli Ísleifsson skrifar 21. janúar 2016 14:39 Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir viðskiptaþvinganir virka þó þær séu umdeildar. Vísir/Vilhelm
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur undirritað reglugerð sem afléttir öllum efnahagslegum og fjárhagslegum þvingunaraðgerðum gegn Íran sem tengjast kjarnorkumálum. Gunnar Bragi segir ástæðu til að fagna þessum áfanga, sem sé sönnun þess að viðskiptaþvinganir geti haft raunveruleg áhrif á alþjóðavettvangi. „Alþjóðlegur samtakamáttur og samningagerð eru mun farsælli leið til lausnar á deilumálum en vopnaskak.“ Þetta er gert í kjölfar þess að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur staðfest að Íran uppfylli nú nauðsynleg skilyrði um skuldbindingar á sviði kjarnorkumála, sem sett voru fram í sameiginlegri heildarframkvæmdaráætlun 14. júlí síðastliðinn. Að henni stóðu Bandaríkin, Bretland, Kína, Frakkland, Rússland, Þýskaland og Evrópusambandið.Í frétt á vef utanríkisráðuneytisins kemur fram að þvingunaraðgerðirnar sem séu felldar niður varði fjármagnshreyfingar, banka- og tryggingamál, olíu, gas og efni unnin úr jarðolíu, skipaflutninga, skipasmíðar og flutninga, gull, aðra eðalmálma, peningaseðla og mynt, málma, hugbúnað og frystingu fjármuna og ferðabann, sem sé aflétt á vissa einstaklinga og lögaðila. „Ekki eru felldar niður þvingunaraðgerðir sem varða vopnaviðskipti, eldflaugatækni, frystingu fjármuna og ferðabann á tiltekna einstaklinga og lögaðila, vissar vörur, tækni og þjónustu á kjarnorkusviði sem verða háð útflutningsleyfum, vissa málma og hugbúnað á kjarnorkusviði sem verða háð útflutningsleyfum. Allar þvingunaraðgerðir sem varða mannréttindabrot Írans, stuðning Írans við hryðjuverkastarfsemi og aðrar aðgerðir sem ekki tengjast kjarnorkumálum gilda áfram,“ segir í fréttinni.
Tengdar fréttir Engin vinna við endurskoðun viðskiptaþvingana í utanríkisráðuneytinu Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir viðskiptaþvinganir virka þó þær séu umdeildar. 21. janúar 2016 11:23 Viðskiptaþvingunum á Íran aflétt í dag Fyrirtæki og bankar í Íran munu á nýjan leik geta stundað viðskipti við umheiminn. 16. janúar 2016 17:15 Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Horfur á húsnæðismarkaði versna Viðskipti innlent Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Viðskipti innlent „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Sjá meira
Engin vinna við endurskoðun viðskiptaþvingana í utanríkisráðuneytinu Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir viðskiptaþvinganir virka þó þær séu umdeildar. 21. janúar 2016 11:23
Viðskiptaþvingunum á Íran aflétt í dag Fyrirtæki og bankar í Íran munu á nýjan leik geta stundað viðskipti við umheiminn. 16. janúar 2016 17:15