Fækkun eignarhluta fjármálafyrirtækja Nadine Guðrún Yaghi skrifar 3. mars 2015 08:45 vísir
Viðskiptabankar, sparisjóðir og lánafyrirtæki hafa náð góðum árangri í að fækka eignarhlutum í fyrirtækjum með starfsemi sem fellur ekki undir almennar starfsheimildir þeirra og einungis er heimilt að stunda tímabundið. Þetta kemur fram í skýrslu frá fjármálaráðuneytinu um tímabundna starfsemi fjármálafyrirtækja. Fjármálafyrirtækjum er heimilt samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki að stunda tímabundið starfsemi í óskyldum rekstri í þeim tilgangi að ljúka viðskiptum eða til að endurskipuleggja starfsemi viðskiptaaðila. Miðað við stöðuna 1. mars eiga fjármálafyrirtæki hluti í 41 félagi í tímabundinni starfsemi. Félög sem fjármálafyrirtæki eiga minna en tíu prósenta eignarhlut í eru ekki meðtalin í þessari samantekt.Af umræddum fjölda félaga er 21 félag í yfir 40 prósenta eignarhaldi fjármálafyrirtækis, í 15 félögum er eignarhaldið á bilinu 20 til 40 prósent og í fimm félögum er eignarhaldið tíu til 20 prósent. Þegar fjöldi eignarhluta fjármálafyrirtækja í félögum í tímabundinni starfsemi þann 1. mars síðastliðinn er borinn saman við fjölda þeirra í nóvember 2011 má sjá að þeim hefur fækkað um 91 félag. Ef þróun síðustu 18 mánaða er skoðuð má sjá að félögum í tímabundinni starfsemi hefur fækkað um 31.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira