Íslandssjóður með þrjá nýja starfsmenn Stefán Árni Pálsson skrifar 3. mars 2015 13:39 Ingólfur Snorri, Helga Óskarsdóttir og Birgir Ottó. myndir/aðsendar
Íslandssjóðir, dótturfélag Íslandsbanka, hefur lokið ráðningum í þrjú störf. Íslandssjóðir hf. er sérhæft félag á sviði sjóðastýringar með um 115 milljarða króna í stýringu frá viðskiptavinum sem hafa fjárfest í verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum félagsins en auk þess stýrir félagið sérhæfðum fagfjárfestasjóðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Ingólfur Snorri Kristjánsson, hefur verið ráðinn forstöðumaður skuldabréfastýringar Íslandssjóða. Undanfarin átta ár hefur hann starfað hjá markaðsviðskiptum Arion banka og forverum hans. Síðustu ár hefur hann starfað við miðlun á skuldabréfum til fagfjárfesta en þar áður við gjaldeyris- og afleiðumiðlun. Á árunum 2003-2007 starfaði hann hjá eignastýringu Íslandsbanka og hjá forvera Íslandssjóða, Rekstrarfélagi Íslandsbanka, þar sem hann gegndi starfi sjóðsstjóra erlendra hlutabréfasjóða. Ingólfur Snorri hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Helga Óskarsdóttir, hefur verið ráðin sjóðsstjóri í skuldabréfastýringu. Helga hefur starfað hjá Íslandsbanka og forverum hans frá árinu 2006. Hún hefur lengst af starfað við verðbréfamiðlun þar sem hún hefur miðlað skuldabréfum til fagfjárfesta og haft umsjón með skuldabréfaútgáfum. Áður starfaði hún í afleiðudeild þar sem hún sá um vaxtaafleiður. Helga hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og er með B.Sc. gráðu í Iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Birgir Ottó Hillers, hefur verið ráðinn lögfræðingur Íslandssjóða. Birgir hefur frá árinu 2014 starfað í Regluvörslu Íslandsbanka. Þar áður starfaði hann um fimm ára skeið hjá Fjármálaeftirlitinu á verðbréfasviði og við rannsóknir og vettvangs- og verðbréfaeftirlit. Birgir Ottó er með meistaragráðu frá lagadeild Háskólans í Reykjavík og B.A. gráðu frá lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hann er með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira