Nýtt Icelandair hótel við Mývatn Stefán Árni Pálsson skrifar 24. mars 2015 10:24 Hér má sjá húsnæðið. mynd/aðsend
Icelandair hótel hafa fest kaup á fasteigninni sem nú hýsir hótel Reykjahlíð við Mývatn en þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Hótelið telur 9 herbergi og veitingasal og er staðsett á einstökum útsýnisstað við vatnið, í næstu grennd við þjónustukjarna Mývatnssveitar. Áform eru um að stækka hótelið og endurreisa sem glæsilegan gististað við þá einstöku náttúruperlu sem Mývatn er, og fjölmargir ferðamenn heimsækja ár hvert. Icelandair hótel fá Hótel Reykjahlíð afhent nú í haust, en fram að þeim tíma verður rekstur hótelsins í höndum fyrrum eigenda þess sem jafnframt reka hótel Reynihlíð við Mývatn. „Fjölgun herbergja ein og sér er ekki meginmarkmið Icelandair hótela. Við viljum hinsvegar leggja metnað í markvissa uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi með því að auka gæði hótelgistingar og veitingaþjónustu þar sem við stígum niður fæti,“ segir Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair hótela. „Við leggjum sömuleiðis mikla áherslu á markaðssetningu landsbyggðar yfir vetrartímann og hlökkum til að eiga samstarf við Mývetninga um frekari þróun sveitarinnar sem þjónustusvæði fyrir innlenda jafnt og erlenda ferðamenn, allt árið um kring,” segir Magnea að lokum. Icelandair hótel keðja hótela sem samanstendur af alls níu hótelum í heilsársrekstri um allt land. Önnur hótel keðjunnar eru Icelandair Hótel Reykjavík Natura, Reykjavík Marina, Hamar, Akureyri, Hérað, Klaustur, Vík, Flúðir og í Keflavík.
Mest lesið Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Bandaríkjadalur besti kosturinn fyrir Ísland Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira