Svigrúm ætti að vera til lækkana Óli Kristján Ármannsson skrifar 20. ágúst 2015 08:00 Forstjóri IKEA á Íslandi hvatti í gær önnur fyrirtæki til að lækka verð hjá sér líkt og IkEA. Forstjórar haga og Byko taka undir að aðstæður í efnahagslífinu séu um margt hagfelldar. vísír/haraldur guðjónsson „
Við tökum bara undir það sem framkvæmdastjóri IKEA er að segja,“ segir Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar Alþýðusambandsins (ASÍ).Ólafur Darri AndrasonÞórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, upplýsti í viðtali við Morgunblaðið í gær, að fyrirtækið hygðist lækka vöruverð hjá sér um 2,8 prósent að meðaltali þegar félagið kynnir í næstu viku nýjan vöru- og verðlista. Í fyrra lækkaði IKEA vöruverð um fimm prósent. Hann hvetur önnur fyrirtæki til að fylgja fordæmi IKEA og vinna þannig á móti mögulegri verðbólguþróun. Aðstæður nú gefi rými til verðlækkana, enda hafi gengi krónu styrkst gegn evru, kjarasamningar hafi verið fyrirtækjum hagfelldari en búist hafði verið við og velta sé meiri vegna aukinna umsvifa í efnahagslífinu. Ólafur Darri segir rétt að ytri skilyrði verslunarinnar séu með allra besta móti. „Krónan hefur verið að styrkjast og þá sérstaklega gagnvart evru, og á sama tíma er verðbólga sáralítil í nágrannalöndum okkar, þannig að innflutningsverslunin er ekki að flytja inn verðbólgu frá öðrum löndum.“ Um leið segir Ólafur Darri að hér hafi almennt verið lítil verðbólga, en með styrkingu krónu ættu að skapast tækifæri til að lækka mögulega verð. Í mælingum ASÍ hafi ekki sést miklar hækkanir, en þær sýni svigrúm til lækkana. „Gengisþróun hefur samt verið nokkuð misjöfn,“ bendir Ólafur Darri um leið á, því þótt krónan hafi styrkst gagnvart helstu viðskiptamyntum, þá hafi hún veikst gagnvart dollaranum.Finnur ÁrnasonFinnur Árnason, forstjóri Haga, tekur undir að aðstæður í efnahagslífinu séu um margt hagfelldar, en fyrirtækið bregðist við þróun sem slíkri dag frá degi og hún endurspeglist í verðlagningu. „Við verðleggjum ekki einu sinni á ári eins og þeir.“ Finnur bendir jafnframt á að Hagar birti sínar tölur opinberlega, en félagið er skráð í Kauphöll Íslands. „Fyrstu fimm mánuðir ársins eru ljósir og þar er okkar álagning að lækka.“ Þá segir Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri Byko, fyrirtækið ekki hafa tekið afstöðu til mögulegra frekari verðlagsbreytinga. „Við erum hins vegar í talsvert öðru umhverfi en IKEA,“ segir hann og bendir á að stór hluti innkaupa verslunarinnar eigi sér stað í dollurum. „Og dollarinn hefur hækkað um tæp fimm prósent frá áramótum.“ Fyrirtækið hafi þó ekki hreyft við verðum í á annað ár þótt það hafi tekið á sig hækkanir hjá birgjum erlendis. Tölur fyrirtækisins sýni að unnið hafi verið á sömu álagningu allt þetta ár. „Sem sýnir að verðlækkunin er að skila sér í gegnum tilboðskerfin hjá okkur og svo auðvitað í gegnum breytingar á vörugjöldum og virðisaukaskatti um áramótin.“
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira