Þrjár nýjar verslanir Bónuss á þessu ári jón hákon halldórsson skrifar 1. júlí 2015 10:45 Hagar reka 29 Bónusverslanir. Þar af eru 19 á höfuðborgarsvæðinu.
Hagar, sem reka meðal annars matvöruverslanirnar Bónus og Hagkaup, festu kaup á fasteigninni Túngötu 1 í Reykjanesbæ fyrr í júní. Þar verður opnuð Bónusverslun á næstu mánuðum. Áður hafði verið tilkynnt að aðrar tvær Bónusverslanir yrðu opnaðar á haustmánuðum, í Skipholti og Vestmannaeyjum. Í dag eru verslanirnar 29 talsins, þar af nítján í höfuðborginni. Þá kom einnig fram við kynningu á síðasta ársreikningi Haga að félagið hefur keypt húsnæðið við Stekkjarbakka 4-6 í Reykjavík. Áform eru um að opna Bónusverslun á þeim hluta lóðarinnar sem stendur við hlið Garðheima og ÁTVR. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvenær verslunin verður opnuð. Hagnaður Haga á þriggja mánaða tímabili nam 811 milljónum króna. Uppgjörið nær frá 1. mars til 31. maí. Vörusala tímabilsins nam 18,7 milljörðum króna og var framlegð 24 prósent. Í árshlutauppgjörinu kemur fram að hagnaður fyrsta ársfjórðungs er 13,6 prósentum lægri en á síðasta ári. Sá samdráttur er rakinn til kostnaðar vegna verkfalla. Áður hafði verið búist við því að samdrátturinn myndi nema 15 prósentum. Hagar er skráð í Kauphöll Íslands. Það var fyrsta fyrirtækið sem var skráð eftir bankahrun og þótti skráningin afar vel heppnuð. Gengi bréfa félagsins var rétt rúmar 13,5 krónur á hlut í útboði sem haldið var í aðdraganda skráningarinnar í lok árs 2011. Á einungis örfáum mánuðum rauk verðið upp yfir 40 krónur á hlut. Síðla í októbermánuði 2014 var verðið á bréfum komið upp í 46 krónur en síðan þá hefur það lækkað. Í gær var gengi bréfanna 36,3 krónur á hlut. Það jafngildir rúmlega 22 prósenta lækkun bréfanna á átta mánaða tímabili.
Mest lesið Lagning gjaldþrota Viðskipti innlent Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Viðskipti innlent Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Viðskipti erlent Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Viðskipti innlent Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Atvinnulíf Að líða eins og svikara í vinnunni Atvinnulíf Uppsagnir hjá Fjársýslunni Viðskipti innlent Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Sjá meira