Kaupþing á 28 prósent upp í kröfur Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. mars 2015 15:02 Eignir Kaupþings jukust um rúma 20 milljarða.
Bókfært virði eigna Kaupþings nam 799,8 milljörðum króna í árslok 2014. Útstandandi kröfur nema hins vegar 2825,6 milljörðum króna. Eignir nema því rétt rúmlega 28 prósentum af kröfum. Kröfuhafafundur var haldinn í gær þar sem niðurstaðan var kynnt. Vísir greindi frá því á dögunum að eignir slitabús Glitnis banka nema tæplega 963 milljörðum íslenskra króna en kröfurnar nema 2.271 milljarði króna. Búið á því um það bil 42 prósent upp í kröfur. Í tilkynningu frá Kaupþingi kemur fram að eignir Kaupþings jukust um 21,7 milljarða á liðnu ári eða um 2,8 prósent. Því til viðbótar voru í árslok, 19,2 milljarðar króna geymdir á vörslureikning til að mæta umdeildum seint framkomnum forgangskröfum. Mælt í evrum jókst verðmæti eignasafnsins um 275 milljónir eða um 5,6% á árinu. Heildarfjárhæð útistandandi krafna í kröfuskrá lækkaði um 53,7 milljarða á árinu og nam 2.825,6 milljörðum króna í árslok. Ástæður þessarar lækkunar má að mestu leyti rekja til úrlausna ágreiningsmála. Heildarfjárhæð samþykktra krafna í kröfuskrá hækkaði um 10,6 milljarða á árinu og nam 2.814,1 milljarði króna í árslok. Handbært fé Kaupþings nemur um 401,7 milljörðum króna sambanborið við 418,6 milljörðum í lok árs 2013.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira