Nýr fimm milljarða fjárfestingasjóður Stefán Árni Pálsson skrifar 6. febrúar 2015 12:43 mynd/aðsend
Frumtak hefur stofnað nýjan sjóð, Frumtak 2 sem er fimm milljarðar að stærð. Sjóðnum er ætlað að fjárfesta með svipuðu sniði og Frumtak hefur gert frá árinu 2009. Þessi nýi sjóður hefur, líkt og fyrri sjóður, að markmiði að fjárfesta í fyrirtækjum sem hafa á að skipa öflugum teymum sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Frumtak. Hluthafar í hinum nýja sjóði eru tíu lífeyrissjóðir, einn banki og umsýsluaðili sjóðsins. Fjárfestingastjórar hins nýja sjóðs eru Eggert Claessen og Svana Gunnarsdóttir. Þau hafa verið fjárfestingastjórar Frumtaks frá byrjun og fylgt eftir fjárfestingum sjóðsins. Þau eru bæði frumkvöðlar og eiga að baki feril í rekstri eigin fyrirtækja og þekkja því vel heim frumkvöðulsins. Þau hafa í starfi sínu hjá Frumtaki setið í stjórnum þeirra fyrirtækja sem sjóðurinn hefur fjárfest í og tekið virkan þátt í að byggja upp farsæl fyrirtæki með stjórnendum þeirra eins og DataMarket, Meniga, Mentor, Controlant, Cintamani og fleiri. „Það er mikil gróska í fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja þessa dagana og mörg athyglisverð fjárfestingatækifæri,” segir Eggert Claessen framkvæmdastjóri Frumtaks, „Það hefur sýnt sig í fjárfestingum Frumtaks að þessi fyrirtæki skapa fjölda áhugaverðra starfa sem eykur fjölbreytni í atvinnumálum og sala á vörum þeirra og þjónustu erlendis eykur gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Stofnun þessa nýja sjóðs staðfestir að það er mikill og almennur skilningur á því að skjóta fleiri stoðum undir atvinnulífið, sérstaklega þeim sem byggja á íslensku hugviti og þeim mannauð sem við eigum”. Svana Gunnarsdóttir, fjárfestingastjóri Frumtaks segir að „Lykilatriði hjá Frumtaki er að eiga gott samstarf við stjórnendur fyrirtækjanna því þetta getur verið löng vegferð þar sem gagnkvæmt traust er forsenda þess að vel takist til. Bakgrunnur okkar og reynsla verður fyrirtækjunum að liði því að fjármagnið eitt og sér dugar ekki til."
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira