Elsti neminn í jóga er 93 ára Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 2. nóvember 2015 07:00 „Jóga veitir gleði og frið og mig langar að miðla því til annarra,“ segir Alda Magnúsdóttir jógakennari sem er fremst á myndinni. vísir/vilhelm
Þegar Alda Magnúsdóttir hóf að kenna jóga fyrir rúmum áratug kenndi hún þrennum hjónum íþróttina á heimili sínu. Tvenn hjón voru fyrir framan hana þegar hún kenndi þeim jógastöðurnar en þau þriðju voru fyrir aftan hana, í öðru herbergi vegna skorts á rými. Nú kennir Alda, sem er 72 ára, allt að 40 eldri borgurum jóga í sal í íbúðarhúsnæði aldraðra á Seltjarnarnesi. Elsti þátttakandinn er 93 ára. Eftir að hafa sjálf lært jógaiðkun í kringum árið 2000 ákvað Alda, sem starfaði sem sjúkraliði þar til hún var 67 ára, að læra jógakennslu. „Jóga veitir gleði og frið og mig langaði til að miðla því til annarra. Ég byrjaði jógakennsluna með þrenn hjón til að styrkja hjónaband þeirra." Alda, sem einnig kenndi í Jassballettskóla Báru í nokkur ár, segir nokkur hjón í hópi eldri borgaranna sem iðka jóga með henni tvisvar í viku, hálfa klukkustund í senn. Hún segir gleðina skína af þeim og öllum öðrum í hópnum. „Við gerum nokkrar jógastöður en leggjum mesta áherslu á öndunina. Fólkið talar um að þetta geri því gott. Þau eru öll rosalega glöð. Jóga hefur verið stundað í um sex þúsund ár og eykur hreysti og hamingju.“ Að sögn Öldu eru sumir í hópnum að hefja jógaiðkun í fyrsta skipti. „Það er enginn að spá í hvernig aðrir gera jógastöðurnar. Það hugsar hver og einn um að öðlast kyrrð og ró í hugann. Við erum oftar en ekki með hálflokuð augu.“ Hún tekur fram að hugarfarsbreyting verði hjá þeim sem stunda jóga vegna bættrar andlegrar og líkamlegrar líðanar. „Fólk á öllum aldri getur iðkað jóga. Nú er til dæmis farið að iðka bæði jóga og hugleiðslu í leikskólum.“
Mest lesið Endurvekur ferðabannið Erlent Segir ljóst að Víðir hafi brotið stjórnsýslureglur: „Það er verið að kaupa sér vinsældir“ Innlent Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Erlent Réttað yfir sakhæfum Ym fyrir luktum dyrum Innlent Ætlar að gera allt í sínu valdi til að tryggja rekstur Kaffistofunnar Innlent Loka kaffiskúrnum umtalaða við Leifsstöð Innlent Sári djúpt snortinn yfir stuðningi Innlent Ríkið keypti nýjan sendiherrabústað á 750 milljónir Innlent Öryggismál að eiga reiðufé heima fyrir „ef í harðbakkann slær“ Innlent Felldu tillögu um að olíusjóðurinn sniðgengi fyrirtæki á hernumdu svæðunum Erlent Fleiri fréttir Með hvalssporð um hálsinn við þingfestingu Sári djúpt snortinn yfir stuðningi Sundhöllinni lokað vegna reyks Rúmur helmingur ánægður með störf Höllu Réttað yfir sakhæfum Ym fyrir luktum dyrum Svara fyrir skýrslu fjármálaeftirlitsnefndar Rignir enn fyrir norðan þótt heldur hafi dregið úr ákefðinni Ofurölvi þjófur gisti í fangageymslu Segir ljóst að Víðir hafi brotið stjórnsýslureglur: „Það er verið að kaupa sér vinsældir“ Ætlar að gera allt í sínu valdi til að tryggja rekstur Kaffistofunnar Fádæma úrhelli á Ólafsfirði Hildur er nýr formaður Almannaheilla Loka kaffiskúrnum umtalaða við Leifsstöð Öryggismál að eiga reiðufé heima fyrir „ef í harðbakkann slær“ Um 100 skemmtiferðaskip í Vestmannaeyjum í sumar „Auðvitað bregður fólki“ Ríkið keypti nýjan sendiherrabústað á 750 milljónir Hlutfall barna sem beitti foreldra eða skylda ofbeldi tvöfaldaðist Strandveiðimenn huga að samstöðufundi við Austurvöll Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar og endurfrumsýning Brúðubílsins Skemmtiferðaskipi snúið vegna vinds „Djöflablístur“ stafi líklega af svölum nýbygginga Stöðvaði miðasölu um leið og hann áttaði sig á stöðu mála Hrottalegu ofbeldi lýst í ákæru á hendur Stefáni, Lúkasi og Matthíasi Tvöfalt fleiri Parkinson-sjúklingar eftir fimmtán ár Alvarlegum ofbeldisbrotum fjölgað á síðustu kvartöld „Þetta eru alveg galin vinnubrögð“ Sex ára fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu Mygla í Árnasafni: „Handritin eru örugg“ Inga endurvekur 25 metra regluna Sjá meira