Ólöglærð lagði LÍN sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 2. nóvember 2015 15:33 Lánasjóðurinn fór fram á að konunni yrði gert að greiða 4,4 milljónir og málskostnað. Konan sagði kröfugerðina vanreifaða og fór fram á frávísun. Dómurinn féllst á það og hefur LÍN verið gert að greiða málskostnað. vísir/valli
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá dómi máli Lánasjóðs íslenskra námsmanna gegn lántakanda og umboðsmanni hans vegna vanreifunar lánasjóðsins á kröfugerð. LÍN krafðist þess að fólkið myndi sameiginlega greiða 4,4 milljónir auk dráttarvaxta vegna láns sem tekið var árið 2007, og allan málskostnað.Á lágmarks örorkulífeyri Stefndu eru bæði ólöglærð en fluttu málið sjálf. Lántakandinn er kona sem sótti um lán vegna flugnáms í Bandaríkjunum árið 2007. Hún veiktist illa árið 2012 og var henni því veitt undanþága til eins árs frá föstum afborgunum. Henni láðist að sækja um aðra þágu fyrir tilsettan tíma og var undanþágu beiðni hennar því hafnað af stjórn LÍN. Konan segir veikindin hafa versnað árið 2013 sem hafi valdið því að hún hafi ekki haft rænu á að sækja um aðra undanþágu frá greiðslu gjalddaga, samkvæmt reglum lánasjóðsins. Hún hafi talið víst að undanþága frá greiðslu gilti svo lengi sem aðstæður hefðu ekki breyst til batnaðar. Greiðsluvilji hennar hafi verið og sé einlægur en algjörlega óraunhæfur þar sem hún hafi engar aðrar tekjur en lágmarks örorkulífeyri. Eins og þekkt sé „dragi maður ekki tennur úr tannlausri kellingu“.Enginn samningsvilji Hún sagði LÍN ekki hafa sýnt nokkurn samningsvilja og að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að ná samkomulagi hafi viðbrögð sjóðsins verið þrákelkni og neikvæð. Hún fór því fram á að málinu yrði vísað frá dómi. Ýmsir annmarkar væru á kröfugerð lánasjóðsins, til að mynda hafi þar hvergi verið að finna sundurliðaða fjárhæð heildarskuldarinnar og því ógerlegt að sannreyna kröfu sjóðsins. Á það féllst dómurinn. Vanreifun hafi verið á kröfugerð lánasjóðsins sem valdi því að viðhlítandi vörnum verði ekki komið við að hálfu konunnar. Þá var LÍN gert að greiða konunni og ábyrgðarmanni hennar 400 þúsund krónur í málskostnað.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira