Segja Seðlabankann vinna gegn eigin vaxtahækkunum Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. júlí 2015 13:18 Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA. mynd/aðsend
Úr niðurstöðum nýrrar úttektar Samtaka atvinnulífsins má lesa að Seðlabankinn hafi keypt gjaldeyri í skiptum fyrir íslenskar krónur frá september 2013 til að koma í veg fyrir styrkingu krónunnar. Ef fram fer sem horfir er útlit fyrir að gjaldeyriskaup Seðlabankans á þessu ári geti numið vel yfir 200 milljarða króna segir í tilkynningu frá SA. Í tilkinningunni segir einnig að inngrip Seðlabankans séu ekki án kostnaðar en Seðlabankinn greiðir gjaldeyriskaup sín með „peningaprentun“, m.ö.o. auka inngrip Seðlabankans peningamagn í umferð. Inngrip Seðlabankans eru um þessar mundir að mestu leyti óstýfð inngrip en það þýðir að Seðlabankinn grípur ekki til mótvægisaðgerða til að draga úr aukningu peningamagns. Þessu til viðbótar fylgir því kostnaður fyrir ríkið af miklum vaxtamun, einkum þegar stjórnvöld og í raun Seðlabankinn hafa lofað nánast óbreyttri krónu. Seðlabankinn sé því í nokkuð undarlegri stöðu. Annars vegar er hann byrjaður að hækka stýrivexti á ný og boðar frekari vaxtahækkanir á næstu mánuðum, en um leið eykur hann peningamagn í umferð með inngripum á gjaldeyrismarkaði. Verðlagsáhrif þess að auka peningamagn í umferð eru þau sömu og ef Seðlabankinn lækkar vexti, því slíkt stuðlar að verðbólgu, lækkar virði krónunnar til lengri tíma litið og skapar þrýsting á markaðsvexti til lækkunar. Seðlabankinn er því m.ö.o. að draga úr áhrifum sinna eigin vaxtahækkana með inngripum á gjaldeyrismarkað segir í tilkynninunni.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira