Samkeppniseftirlitið samþykkir yfirtöku Landsbankans á Sparisjóði Norðurlands ingvar haraldsson skrifar 4. september 2015 17:00 vísir/pjetur
Samkeppniseftirlitið telur að ekki forsendur til íhlutunar vegna yfirtöku Landsbankans á Sparisjóði Norðurlands. Ástæður þess eru að Sparisjóðurinn hafi verið á fallandi fæti og þurft á frekara fjárframlagi að halda. „Sparisjóðurinn uppfyllir ekki lagaskilyrði starfsleyfisskylds fjármálafyrirtækis. Honum er ómögulegt af eigin rammleik að uppfylla eiginfjárkröfur Fjármálaeftirlitsins. Stærsti stofnfjáreigandinn í sjóðnum, ríkissjóður, sem fer með tæplega 80% hlut í sjóðnum, hefur alfarið hafnað því að leggja sparisjóðnum til fé. Meðal annars þess vegna voru kröfuhafar ekki reiðubúnir til að koma að lausn málsins,“ segir í úrskurði Samkeppniseftirlitsins. Sparisjóðurinn hafi gripið til ráðstafana til þess að fá þriðju aðila, aðra en viðskiptabankana þrjá, til að leggja sjóðnum til fé og gerast eigendur að sjóðnum en ekki gengið. Þá hafi annmarkar á söluferlinu, bæði hvað varðar tímafresti og skilyrðum gagnvart einstökum fjárfestum, ekki breytt niðurstöðu málsins. „Ræður þar miklu að bjóðendur höfðu þekkingu á málinu vegna aðkomu að sölutilraunum annarra sparisjóða, auk þess sem þeir sögðu sig frá málinu áður en reynt hafði til fullnustu á tímafresti. Þá hafði einn hinna mögulegu fjárfesta ekki sýnt fram á hæfi sitt til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki, þrátt fyrir að FME hefði leiðbeint honum þar um.“ Engu síður geti tilvist sparisjóða falið í sér tækifæri til aukinnar samkeppni, t.d. með því að eignir þeirra, starfsleyfi og viðskiptavild nýtist til uppbyggingar á nýju afli sem veitt getur samkeppnisaðhald.
Mest lesið Ingu Tinnu hjá Dineout gjörsamlega ofboðið Viðskipti innlent Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Viðskipti innlent Eignast Securitas að fullu Viðskipti innlent Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Úr tveimur milljarða tekjum í fimm en töpuðu þrjátíu Ingu Tinnu hjá Dineout gjörsamlega ofboðið Eignast Securitas að fullu Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Sjá meira