Skrúfan er laus Frosti Logason skrifar 23. apríl 2015 00:01 Útvarp Saga hefur lengi vel verið í uppáhaldi hjá mér. Þar talar rödd þjóðarinnar, í símatíma stöðvarinnar, undir styrkri leiðsögn þáttastjórnandans sem þorir á meðan aðrir þegja. Ég fullyrði að í þessari viku hafi hlustendur náð alveg nýjum hæðum í uppbyggilegum siðferðisboðskap og náungakærleik. Þvílík og önnur eins samstaða um mannréttindi og fleiri kristin gildi er vandfundin. Umræða um svokallaða hinseginfræðslu í Hafnarfirði hefur verið áberandi og hafa áhangendur stöðvarinnar sýnt aðdáunarverða samstöðu í því máli. Út með hommaskapinn og inn með kristnifræðsluna er meginstefið í þættinum Línan er laus. En þótt ótrúlegt megi virðast þá virðast þessar skoðanir hlustenda útvarps Sögu ekki eiga upp á pallborðið hjá öðrum Íslendingum. Það er í rauninni mjög einkennilegt. Var það ekki alveg kýrskýrt hjá Frelsaranum frá Nasaret að samkynhneigð væri viðurstyggð? Varla er íslenska þjóðkirkjan, sem nýtur sérstaks stuðnings ríkis og er varin af stjórnarskrá landsins, að fara með fleipur í þessu máli. Í tillögu sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í síðustu viku segir meðal annars að hinsegin ungmenni upplifi skort á upplýsingum, umræðu og fyrirmyndum og eiga í erfiðleikum með að þróa jákvæða sjálfsmynd. Að fræðslan geti gert þeim auðveldara að takast á við þær tilfinningar sem tengjast kynhneigð þeirra og kynvitund. Auk þess geti hinseginfræðsla verið mikilvægur liður í að útrýma fordómum og uppræta hatursfulla orðræðu gegn hinsegin einstaklingum. Þið afsakið. Ég er ekki viss um að okkar kristna samfélag kæri sig um slíkt trúboð og innrætingu af þessum toga í blessuð börnin. Hlustendur Útvarps Sögu telja skaðlegt að innræta ungum börnum málefni sem þau hafa ekki þroska til að skilja. Lítil börn eru nefnilega viðkvæmur gróður sem verður að fá að vaxa og dafna í friði. Að demba yfir þau kennslu um samkynhneigð er slæmt á meðan boðskapur Gídeonfélagsins er hins vegar frábær. Já góðir landsmenn. Skrúfan er svo sannarlega laus. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Frosti Logason Mest lesið Öfgamaður deyr Andri Þorvarðarson Skoðun Hver hagnast á hatrinu? Halldóra Mogensen Skoðun Börn sem skilja ekki kennarann Ingibjörg Ólöf Isaksen Skoðun Skortur á rafiðnaðarfólki ógnar samkeppnishæfni Evrópu Kristján Daníel Sigurbergsson Skoðun Vissir þú, að.... og eða er þér bara slétt sama Björn Ólafsson Skoðun Fatlað fólk rukkað með rangindum fyrir bílastæði Haukur Ragnar Hauksson Skoðun Að taka til í orkumálum Guðrún Schmidt Skoðun Um ópið sem heimurinn ekki heyrir Reham Khaled Skoðun Talaðu núna, talaðu! Bolli Pétur Bollason Skoðun 30 by 30 - Gefum lífi á jörð smá séns Rósa Líf Darradóttir Skoðun