Segja börn veikra vera skilin útundan Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 6. nóvember 2015 07:00 Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins vill snúa velferðarkerfinu við og huga að upphafinu. Honum finnst ekki nóg að gert. Fréttablaðið/GVA „
Það verður að hefja strax aðgerðir í sambandi við þessi börn sem eiga undir högg að sækja en ekki tuttugu árum seinna þegar þau eru orðin fullorðið fólk,“ segir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri, sem sæti átti í starfshópi vegna nýrrar geðheilbrigðisstefnu, og vísar til aðstæðna barna sem alast upp við veikindi foreldris. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra kynnti í byrjun vikunnar á fundi ríkisstjórnar tillögu að þingsályktun um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára. Í áætluninni er að finna verkefnið Tölum um börnin/Fjölskyldubrúin. Markmið verkefnisins er að draga úr hættu á að geðheilsuvandi flytjist milli kynslóða með því að veita einstaklingum með geðraskanir og fjölskyldum þeirra fræðslu og meta þörf fyrir stuðning í uppeldishlutverki þeirra. Verkefnið verður framkvæmt með því að þjálfa starfsfólk í heilsugæslu í vinnubrögðum sem verkefnið gerir kröfu til en ekki eru nefnd nein sértæk meðferðarúrræði til sögunnar. Styrmi finnst ekki nóg gert. „Ég einbeiti mér að einu máli. Að reyna að koma því í kring að það yrði tekið inn í með einhverjum hætti í lög þó að þingsályktun sé ekki lög, að geðheilbrigðiskerfinu bæri samhliða meðferð á geðveiku fólki að taka til meðferðar líka börn hinna geðsjúku. Það er svo augljóst að þetta er þáttur sem hefur verið vanræktur. Þetta á við um miklu fleiri börn en börn geðsjúkra.“ Hann segir skoðun sína að snúa eigi velferðarkerfi þjóðarinnar við og leggja áherslu á þetta í upphafi.Margrét María Sigurðardóttir umboðsmaður barnaStyrmir segir lærdóm felast í reynslu og lífi uppkominna barna geðsjúkra. Hann sat nýverið á málþingi Geðhjálpar, Öðruvísi líf, þar sem Einar Zeppelin Hildarson ræddi um uppvöxt sinn með geðveikri móður sinni sem sagði það ótrúlegt að hann hafi komist heill í gegnum veikindi hennar. Umboðsmaður barna hefur einnig bent á vanda barna sem eiga foreldri sem glíma við fíkn, geðsjúkdóma eða önnur veikindi og þann skort á úrræðum sem þeim hópi stendur til boða. „Mikið vantar upp á sálfræðiþjónustu fyrir börn og er það mismunandi eftir búsetu hvort slík þjónusta er í boði gjaldfrjálst. Nokkrir aðilar eru þó að bjóða þjónustu fyrir börn, til dæmis SÁÁ, Hugarafl, Hlutverkasetrið og fleiri,“ segir Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira