Þrotabú bankanna gætu þurft að greiða yfir 1.800 milljarða í skatt ingvar haraldsson skrifar 13. maí 2015 10:16 Þrotabú föllnu bankanna gætu þurft að greiða stærstan hluta af eignum sínum í skatt.
Þrotabú föllnu bankanna gætu þurft að greiða yfir 1800 milljarða íslenskra króna í skatt verði slitum á búunum ekki lokið fyrir árslok 2018. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Útreikningurinn byggir á bindandi áliti ríkisskattstjóra frá því fyrr á þessu ári. Þar kemur fram að mismunur milli samþykktra krafna og eigna þrotabúa skuli flokkast sem eftirgjöf skuldar og því vera skattlögð sem tekjur. Slíkur skattur myndi teljast sem búskrafa og ganga fram fyrir forgangskröfur. Tekjuskattur við gjaldþrotaskipti er 36% en 20% þegar skiptum lýkur með nauðasamningi. Þyrftu að ljúka slitum fyrir árslok 2018 Þrotabúin geta á móti þessum kröfum nýtt yfirfæranlegt skattalegt tap sitt en þar eru þau að renna út á tíma. Yfirfæranlegt skattalegt tap má aðeins nýta í áratug. Kaupþing hefur eitt þrotabúa gefið út yfirfæranlegt tap sitt sem þeir meta 2.412 milljarða króna. Það er hins vegar að langstærstum hluta tilkomið vegna ársins 2008 eða 2.286 milljarðar samkvæmt því sem fram kemur í Viðskiptablaðinu. Miðað við þetta munu þrotabúin því þurfa að greiða stóran hluta af eignum sínum í skatt eftir árið 2018. Að óbreyttu þurfa þrotabúin því að ljúka gjaldþrotaskiptum fyrir árslok 2018 til að komast hjá því skattgreiðslunum. SPB ehf., sem áður hét Icebank, óskaði eftir álitinu en Viðskiptablaðið segist hafa heimildir fyrir því að málinu verði áfrýjað til yfirskattanefndar.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira