Már aðeins einu sinni í minnihluta í Peningastefnunefnd ingvar haraldsson skrifar 13. maí 2015 13:16 Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Katrín Ólafsdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík sem bæði sitja í Peningastefnunefnd. vísir/gva
Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefur einungis einu sinni verið í minnihluta við ákvörðun stýrivaxta á fundum Peningastefnunefndar síðan hann tók við embætti árið 2009. Næst sjaldnast hefur Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri verið í minnihluta eða þrívegis. Þetta kemur fram í Peningamálum sem kom út í dag.Árið 2009 var fyrirkomulagi um vaxtákvarðanir breytt en síðan þá hefur fimm manna nefnd tekið ákvarðanir um stýrivexti Seðlabanka Íslands. Í nefndinni sitja nú Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, sem og Katrín Ólafsdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík og Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands sem bæði eru skipuð af forsætisráðherra.Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefur einungis einu sinn verið í minnihluta við vaxtaákvörðun hjá Peningstefnunefnd.mynd/peningamálSíðan fyrirkomulaginu var breytt hafa verið haldnir 49 vaxtaákvörðunarfundir. Nefndin hefur verið sammála um vaxtaákvörðun í rúmlega helmingi tilfella. Í þriðjungi tilvika kaus einn nefndarmaður gegn meirihlutanum og í einum sjötta tilfella kusu tveir nefndarmenn gegn meirihlutanum. Sá aðili sem oftast hefur verið ósammála meirihlutanum er breski hagfræðingurinn Anne Sibert eða í 30 prósent tilfella en hún sat í nefndinni frá febrúar 2009 til febrúar 2012. Þá hefur Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, verið ósammála meirihlutanum í 27 prósenta tilfella.Telja breytinguna vel heppnaða Í Peningamálum kemur fram að þegar tveir nefndarmenn hafa verið í minnihluta hefur innri nefndarmenn, það eru seðlabankastjórarnir tveir og aðalhagfræðingur Seðlabankans, verið í meirihluta í fjórðungi tilfella. Þetta bendi ekki til blokkamyndunar milli innri og ytri meðlima. Að mati ritnefndar Peningamála líti því ekki út fyrir að staða seðlabankastjóra sé of sterk sé miðað við tíð minnihlutaatkvæði aðstoðarseðlabankastjóra og aðalhagfræðings bankans. Í Peningamálum kemur einnig fram að breytingin á vaxtaákvörðunarfyrirkomulaginu hafi að líkindum verið til góða. Gegnsæi peningastefnunnar hafi aukist og að fyrirkomulagið hafi þótt meðal þess besta sem gerist í heiminum. Þá kemur einnig fram að flestar rannsóknir bendi til þess að fjölskipuð peningamálastefnunefnd henti betur til þess að móta peningastefnu en að einn einstaklingur taki slíkar ákvarðanir enda komist þá fjölbreyttari sjónarmið að.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira