ASÍ segir verð á bílavarahlutum ekki lækka í samræmi við væntingar Atli Ísleifsson skrifar 13. maí 2015 14:20 Verðlagseftirlitið hafi kannað verð á varahlutum í byrjun október 2014 og svo aftur í apríl 2015. Vísir/Daníel
Verðlagseftirlit ASÍ segir að verð á bílavarahlutum hafi ekki lækkað í samræmi við væntingar þegar horft er til afnáms vörugjalda og lækkunar virðisaukaskatts úr 25,5 prósent í 24 prósent. ASÍ segir að varahlutir, svo sem bremsuklossar, stuðarar og stýrisendar sem áður báru 15 prósent vörugjöld hafi átt að lækka um 15,2 prósent þegar horft er til afnáms vörugjalda og lækkunar virðisaukaskatts.Niðurstöður verðlagseftirlits ASÍÍ tilkynningu frá ASÍ segir að verðlagseftirlitið hafi kannað verð á varahlutum í byrjun október 2014 og svo aftur í apríl 2015. „Í meðfylgjandi töflu eru dregnar saman helstu niðurstöður úr samanburði á verðkönnununum í október og apríl. Taflan sýnir fjölda þeirra varahluta sem eru í samanburðinum frá hverju fyrirtæki og hvernig verð hafa breyst á tímabilinu.“Mynd/ASÍ„Í ljós kemur að í 14% tilfella hækkar verð eða er óbreytt, í fjórðungi tilfella lækkar verð um 0-4,9%, í 17% tilfella um 5-9,9% og í 19% tilfella um 15% eða meira. Með öðrum orðum er verð í 81% tilfellum að lækka minna en sem nemur áhrifum af afnámi vörugjalda og lækkunar á vsk. Þegar einstök fyrirtæki eru skoðuð nánar sést að hlutfallslega lækka Toyota, Hekla og Bílanaust verð oftast á bilinu 0-4,9%, Askja og Bernard oftast á bilinu 5-9,9%, Brimborg á bilinu 10-14,9% en algengasta hlutfallslega lækkunin hjá B/L og AB varahlutum er 15% eða meira. Það er því mjög misjafnt hvernig verð er að lækka á umræddu tímabili milli verslana. Þessar niðurstöður vekja upp þá spurningu; hvers vegna er verð á bílavarahlutum er ekki að lækka meira en raun ber vitni? Bílabúð Benna og Stilling neituðu þátttöku á þeim tímapunkti sem upphafsmæling verðlagseftirlits fór fram,“ segir í frétt ASÍ.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira