Viðskipti innlent

Ríkisskattstjóri viðurkennir mistök: Afturkallar álit vegna skatta á þrotabú

ingvar haraldsson skrifar
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. mynd/sigurður jökull
„Ég verð bara að játa það að þau mistök voru gerð að það var ekki gerður nægjanlega glöggur munur á eftirgefnum skuldum rekstraraðila og ógreiddum kröfum við lok gjaldþrotaskipta,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri um bindandi álit nr. 2/2015 sem embættið ákvað í dag að afturkalla.



Sjá einnig: Þrotabú bankanna gætu þurft að greiða yfir 1.800 milljarða í skatt


Hefði álitið staðið hefði það haft í för með sér að þrotabú föllnu bankanna ættu von á að þurfa að greiða yfir 1.800 milljarða í skatt yrði slitum á þrotabúunum ekki lokið fyrir árslok 2018. Viðskiptablaðið greindi frá málinu í dag.

Ástæða þess var að miðað við álit ríkisskattstjóra taldist mismunurinn milli krafna og eigna þrotabúa sem eftirgjöf skuldar í skattalegu tilliti og því ætti að flokka það sem tekjur. Af þessum tekjum hefðu þrotabúin þurft að greiða tekjuskatt.

Skúli Eggert segir að í álitinu hafi ekki nægjanlega glöggur munur gerður á eftirgefnum skuldum rekstraraðila og ógreiddum kröfum við lok gjaldþrotaskipta. Hann bætir við að embættið geti ekki gert annað en að biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hafi valdið.

„Allavega metum við það þannig að það þurfi að afturkalla þessa ákvörðun. Mér heyrist á þeirri umræðu sem hafi nú verið að það sé einnig skoðun álitsbeiðandi eða a.m.k. þeirra sem tjáð sig hafa um málið,“ segir Skúli Eggert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×