Ískrossmenn ósáttir að fá ekki Hvaleyrarvatn Garðar Örn Úlfarsson skrifar 17. desember 2015 07:00 Eins og sést á hjólförunum virða ekki alveg allir akstursbann á ísilögðu Hvaleryrarvatni. vísir/gva „
Við erum litnir hornauga og flokkaðir sem minnihlutahópur,“ segir vélhjólamaðurinn Svavar Friðrik Smárason í bréfi þar sem hann óskar eftir leyfi bæjaryfirvalda í Hafnarfirði til ísaksturs á Hvaleyrarvatni. Svavar rekur í bréfinu að um fimmtán manns séu í hópi vélhjólamanna sem stundi íscross, það er akstur á ís. Leyfi sem þeir hafi fengið árið 2001 til aksturs á Hvaleyrarvatni hafi verið afturkallað í desember 2008. Segir hann það vera dapurlegt að hópurinn hafi mætt miklu mótlæti hjá bæjaryfirvöldum. „Lögreglan kemur iðulega og rekur okkur í burt án þess að gefa skýringar,“ skrifar Svavar sem kveður lögregluna vísa á bæjaryfirvöld. „Samkvæmt því sem ég kemst næst er hávaðamengun orsök þeirra kvartana sem borist hafa,“ heldur Svavar áfram. Þess vegna hafi bærinn bannað ísaksturinn. „Svæðið við Hvaleyrarvatn er útivistarsvæði og opið öllum og fáum við í flestum tilfellum jákvæð viðbrögð almennings,“ segir Svavar og vitnar síðan til lagaákvæðis um almenna umferð um vötn: „Öllum er heimil för, þar með talið á farartækjum, um vötn, einnig á ísi, með þeim takmörkunum sem lög kveða á um, þó þannig að það valdi ekki truflun á veiðum manna.“ Þannig segir Svavar bæjaryfirvöld „eiga í miklum erfiðleikum“ með banna ísaksturinn. Hvaleyrarvatn sé ekki í byggð og aðeins sé um að ræða þrjár til fimm vikur á ári. Miklu betra væri að leyfa þetta á einum stað þar sem hægt sé að hafa eftirlit í stað þess að menn séu að stelast til að fá útrás. „Þetta myndi skapa betri samskipti á milli hjólamanna og annarra hópa en í dag upplifum við okkur alls staðar sem afgangs stærð og erum því síður móttækilegir fyrir vinsamlegum samskiptum þar sem það skiptir ekki miklu máli hvar við erum, alls staðar er amast við okkur,“ segir Svavar í bréfinu. Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðar tók bréf Svavars fyrir í gær og áréttaði að allur ísakstur hafi verið óheimill á Hvaleyrarvatni frá árinu 2006.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira