„Þetta eru skemmtilegu útköllin sem við fáum“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. desember 2015 11:39 Slökkviliðs-og sjúkraflutningamennirnir Birgir Þór Guðmundsson, Guðmundur Hreinsson, sem heldur á litlu stúlkunni sem kom í heiminn í morgun, Bjarni Ingimarsson og Lárus Kristinn Guðmundsson mynd/slökkvilið höfuðborgarsvæðisins „
Þetta eru skemmtilegu útköllin sem við fáum,“ segir Lárus Kristinn Guðmundsson, slökkviliðs-og sjúkraflutningamaður hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en hann var einn fjögurra slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna sem kallaðir voru út í fæðingu sem var farin af stað í heimahúsi um níuleytið í morgun. „Við fáum að vita að það er kona að fara að eiga og það fara tveir bílar héðan frá varðstöðinni að Tunguhálsi. Ég var ásamt samstarfsmanni mínum, Birgi, í seinni bílnum sem kom á vettvang en þetta gekk mjög hratt fyrir sig því þegar við komum á staðinn var myndarleg stúlka komin í heiminn,“ segir Lárus. Þeir Guðmundur Hreinsson og Bjarni Ingimarsson voru í fyrri bílnum og tóku því á móti barninu en Lárus segir að mjög stutt hafi verið á milli hríða hjá móðurinni þegar útkallið kom. Fæðingin gekk síðan vel og eru bæði móðir og dóttir við góða heilsu. „Við biðum eftir ljósmóður sem kom á staðinn til að skoða barnið og móðurina en þetta gekk allt svo vel og þær báðar í góðu standi þannig að þær þurftu ekki að fara niður á fæðingardeild.“ Aðspurður hvort hann haldi að það hafi komið foreldrunum í opna skjöldu að barnið hafi fæðst heima segist hann halda að þau hafi frekar búist við því að fara á fæðingardeildina.Okkar menn fengu það skemmtilega verkefni að taka á móti stúlkubarni í morgun.Posted by Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. on Thursday, 17 December 2015
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Þurfi að sannfæra flokkinn Innlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Fleiri fréttir Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Sjá meira