Viðskipti innlent

Marel endurskipuleggur starfsemi sína í Danmörku

ingvar haraldsson skrifar
Starfsemi Marel í Danmörku mun taka breytingum á næstu mánuðum.
Starfsemi Marel í Danmörku mun taka breytingum á næstu mánuðum.
Marel vinnur nú að endurskipulagningu starfsemi sinnar í Danmörku. Fyrirtækið hyggst sameina starfstöðvar þess í Borgundarhólmi og Árósum.

Starfsemi Marel í Borgundarhólmi sem hingað til hefur verið á sviði háþróaðra hlutunarlausna fyrir fisk-, kjúklinga- og kjötiðnað verður flutt til Árósa sem er miðstöð Marel fyrir lausnir á sviði pökkunar og þjarka.

Í tilkynningu til Kauphallar Íslands segir Marel að sameiningin muni gera félaginu kleift að auka skilvirkni og vera betur í stakk búið fyrir frekari framgang og vöxt á þessu sviði. Rekstarniðurstaða beggja eininga hafi jafnframt verið góð.

Stefnt er að því að flutningurinn frá Borgundarhólmi muni hefjast í mars og verða lokið fyrir árslok 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×