Ritstjóri Viðskiptablaðsins sýknaður í meiðyrðamáli Aðalsteinn Kjartansson skrifar 10. desember 2015 16:41 Róbert Wessman þarf að greiða málskostnað ritstjórans.
Bjarni Ólafsson, ritstjóri Viðskiptablaðsins, var í dag sýknaður af meiðyrðastefnu Róberts Wessman fjárfestis. Staðfesti Hæstiréttur þar með dómi héraðsdóms. Róbert vildi að um að fyrirsögn af forsíðu Viðskiptablaðsins í ágúst á síðasta ári - Sakar Róbert um að hafa dregið sér fé frá Actavis Group hf. – dæmda ómerka og að Bjarni yrði dæmdur til refsingar og til að greiða sér miskabætur.Forsíðan umrædda.ViðskiptablaðiðHæstiréttur taldi hins vegar að umfjöllun um viðskipti Róberts væru fréttnæm og að frétt Viðskiptablaðsins bæri glögglega með sér að Björgólfur Thor fjárfestir, sem fjallað var um í fréttinni, teldi í stefnu og kæru á hendur Róberti að tilfærsla fjármuna sem greint var frá hafi verið ólögmæt og saknæm og að augljóslega væri þar átt við fjár drátt. „Samkvæmt þessu hefði í hinum umstefndu ummælum falist staðhæfing um staðreynd sem væri efnislega rétt,“ segir í niðurstöðu dómsins. Dómurinn taldi að sú skylda hvíldi ekki á blaðamanninum sem skrifaði fréttina að ganga úr skugga um að ásakanir Björgólfs væru réttar. Var því Bjarni, ritstjóri og ábyrgðarmaður blaðsins, sýknaður af kröfu Róberts. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að Róbert ætti að greiða Bjarna milljón krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti en það bætist við þá einu og hálfu milljón sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi hann til að greiða ritstjóranum í málskostnað fyrir héraðsdómi.
Mest lesið Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Greinir á við kjósendur sína Innlent Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Fleiri fréttir Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sjá meira