Hrinti ástríðuverkefni í framkvæmd: Hundrað nemendur í unglingadeild fá markþjálfun Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 2. september 2015 16:30 Unglingar gætu hagnast mikið á markþjálfun að sögn Ástu enda eru síðustu árin í grunnskóla mikil mótunarár. Vísir/Getty „
Markþjálfun snýst um það að laða fram það besta í hverjum einstaklingi. Þessi setning skaut mig beint í hjartað og markþjálfun gerði það svo sannarlega fyrir mig,“ segir Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir en hún er útlærður markþjálfi og leiðir tilraunaverkefni sem snýst um að bjóða nemendum í 8 – 10. bekk í grunnskólum á Suðurnesjunum upp á markþjálfun. Ásta starfaði sem ferðaráðgjafi í 25 ár. „Þegar ég hætti fannst mér sem allar dyr væru lokaðar og fór því í markþjálfun. Svo fór ég í námið, kynntist þessari aðferðafræði og það opnaðist allt fyrir mér, heimurinn opnaðist.Ásta kynntist markþjálfun og líf hennar umbreyttist.Mynd/AðsendÉg hugsaði með mér: Það verða fleiri að fá að vita af þessu, fá þetta verkfæri í hendurnar.“ Hún á sjálf tólf ára dreng og hugsaði með sér hversu mikið skólaumhverfið og kennarar gætu hagnast á að fá markþjálfun sem kennslutæki. Nemendur í framhaldsskóla hættu vegna einmanaleika Hún bendir á hugsanir nemenda í unglingadeild grunnskóla séu á fleygiferð. „Þetta er þessi tími þar sem það er svakalega mikið að gerast hjá þeim. Ekkert endilega pælingar varðandi framtíðina heldur meira verið að spyrja sig: Hvernig á ég að vera svo ég virki í því umhverfi sem ég er í?“ Hún segir það mikilvægt verkefni að vinna að því að sjálfsmynd þessara barna verði sterk. Samkvæmt norskri úttekt hafi unglingar í menntaskóla hætt í skólanum vegna einmanaleika. „Maður fær bara sting í hjartað við að heyra það. Markþjálfun miðar að því að fá fólk til að átta sig á eigin getu og möguleikum. Svona „Ég er nóg.“ Það er setning sem ég elska út af lífinu.“Hópurinn brennur fyrir markþjálfun og er spenntur að láta gott af sér leiða.Mynd/Aðsend„Ég finn það með minn tólf ára dreng að það eru sífelldir barningar, verið að reyna að standa fyrir sínu sjálfstæði, vera metinn fyrir það sem maður er en á sama tíma að leita í einhverjar staðalímyndir.“Kynna þarf menntakerfið fyrir markþjálfun Ásta ákvað að hrinda ástríðuverkefni sínu, kynna fleiri fyrir markþjálfun í framkvæmd. „Ég fór og kallaði saman markþjálfa sem voru á sama máli og ég hvað varðar menntakerfið og við vorum öll sammála um við við yrðum einhvern veginn að kynna menntakerfið fyrir markþjálfun.“ Úr varð tæplega fimmtíu manna hópur markþjálfa sem kallar sig Markþjálfahjartað. Nokkrir úr hópnum ákváðu að taka skrefið nú strax í haust. „Það er ekki nóg að tala um þetta, maður þarf að gera eitthvað. Við ákváðum að taka hluta af Íslandi, taka eitthvað afmarkað svæði og þar sem við vorum með þrjá markþjálfa á Reykjanesinu í þessum hópi ákváðum við að taka Suðurnesin.“ Þegar Ásta hafði samband við skóla kom það henni skemmtilega á óvart hversu jákvæðir stjórnendur væru fyrir því að taka þátt í verkefninu. Fimm skólar eru með í verkefninu að þessu sinni: Akurskóli, Holtaskóli, Stóru-Vogaskóli ,Grunnskólinn í Sandgerði og Myllubakkaskóli. Raunar var það svo að fleiri skólar báðu um að fá að vera með en Ásta hafði ekki fleiri markþjálfa á sínum snærum. Tveir fara í hvern skóla og hver tekur fimm nemendur í markþjálfun.Norsk rannsókn leiddi í ljós að einn þáttur í brottfalli nemenda úr framhaldsskóla var að þeir fundu fyrir einmanaleika.Vísir/GettyHefur engan áhuga á að græða peninga Verkefnið er tilraunaverkefni og verður spennandi að sjá hvort markþjálfun sé eins fyrir þennan aldur og fyrir fullorðið fólk. Spurningalistar verða lagðir fyrir nemendur, foreldra og kennara áður en markþjálfunin hefst. Svo verða nemendur teknir í fimm einstaklingsviðtöl og gildir fullkominn trúnaður um þau samskipti eins og á við alltaf þegar um markþjálfun er að ræða. Eftir skiptin fimm verða spurningalistarnir aftur lagðir fyrir og von er á niðurstöðum um miðjan nóvember. „Þetta er sjálfboðaliðavinna, við erum að gefa vinnuna okkar. Ég sjálf er ekki upptekin af því að græða peninga, það er svo langt frá mínum markmiðum. Ég vil skilja eitthvað eftir í þjóðfélaginu. Svo sjáum við líka að þetta er ofboðslega góð reynsla fyrir okkur enda snýst markþjálfun endalaust um að safna sér reynslu og tímum. Svo hef ég með þessu verkefni þegar komið orðinu markþjálfun inn í umræðuna, allavega á Suðurnesjum. Þegar ég byrjaði í þessu námi var sífellt verið að spyrja mig: „Markþjálfun, hvað er það? Ertu að þjálfa markmenn?“ Ég vil koma þessu til sem flestra.“Hvað er markþjálfun:Markþjálfun er langtímasamband sérþjálfaðs markþjálfara og marksækjanda sem byggir á gagnkvæmu...Posted by Markþjálfahjartað on Tuesday, August 25, 2015 Hvað er markþjálfun? Markþjálfun er langtímasamband sérþjálfaðs markþjálfara og stjórnanda sem byggir á gagnkvæmu trausti, faglegri nálgun og öflugum stuðningi við þín markmið. Markþjálfun er hlutlaus og uppbyggilegur vettvangur til þess að þekkja og nýta betur eigin styrkleika og tækifæri, kortleggja eigin væntingar og fá stuðning við að gera þína framtíðarsýn að veruleika. Markþjálfarar vinna að því að virkja sköpunargleði einstaklinga og aðstoða þá við hrinda í framkvæmd raunhæfum og árangursríkum úrræðum.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Vara við nálum í hrekkjavökunammi Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Fleiri fréttir Feðgar séu í haldi í tengslum við málið þar sem maður lést Vara við nálum í hrekkjavökunammi „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira