Guðmundur Rafnkell nýr framkvæmdastjóri hjá Samvinnufélagi útgerðarmanna í Neskaupstað Atli Ísleifsson skrifar 2. september 2015 18:46 Guðmundur Rafnkell Gíslason hefur að undanförnu gegnt starfi framkvæmdastjóra Sjónaráss.
Guðmundur Rafnkell Gíslason mun taka við embætti framkvæmdastjóra Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað um miðjan október. Freysteinn Bjarnason mun þá láta af störfum sökum aldurs en hann hefur gegnt starfinu frá árinu 2005. Guðmundur Rafnkell hefur að undanförnu gegnt starfi framkvæmdastjóra Sjónaráss. Í tilkynningu frá Samvinnufélagi útgerðarmanna í Neskaupstað kemur fram að Guðmundur Rafnkell sé 45 ára að aldri og búsettur í Neskaupstað ásamt eiginkonu og tveimur dætrum. „Hann lauk B.ed.-prófi frá Háskólanum á Akureyri árið 1997 og hefur auk þess lokið fjölmörgum námskeiðum á sviði stjórnunar-, öryggis- og mannauðsmála. Guðmundur annaðist rekstur Hótels Egilsbúðar í Neskaupstað á árunum 1997-2005 og var mannauðsstjóri hjá ESS Support Services á Reyðarfirði á árunum 2005-2007. Frá árinu 2008 hefur hann síðan gegnt starfi framkvæmdastjóra Sjónaráss. Guðmundur hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum en hann átti sæti í bæjarstjórn Neskaupstaðar og síðar Fjarðabyggðar í 15 ár og var forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar á árunum 2006-2010. Hann sat í stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi á árunum 2004-2010 og Byggðastofnunar á árunum 2011-2014. Frá unga aldri hefur Guðmundur tekið virkan þátt í félagsstörfum og tónlistarlífi. Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað var stofnað árið 1932 og á sér merka sögu. Nú rekur félagið tvær verslanir, Fjarðasport í Neskaupstað og Veiðifluguna á Reyðarfirði auk þess sem það hefur umboð fyrir Tryggingamiðstöðina og annast verkefni í samstarfi við ÁTVR. Þá hefur félagið sinnt framkvæmdastjórn fyrir Olíusamlag útvegsmanna í Neskaupstað. Samvinnufélagið á eignarhlut í Síldarvinnslunni hf. og ráðstafar drjúgum hluta árlegs arðs af þeirri eign til menningar- og félagsmála innan fjallahrings Norðfjarðar,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira