Búast við að gengi bréfa í Icelandair hækki Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. júlí 2015 07:00 Búist er við því að gengi bréfa hækki. vísir/vilhelm
Búast má við frekari hækkunum á hlutabréfaverði Icelandair í vikunni. Þetta kemur fram í afkomuspá fyrir Icelandair Group sem IFS greining gaf út í fyrradag. Spáin er meðal annars rökstudd með því að farþegum félagsins fjölgar enn. Flutningatölur fyrir júní sýna að félagið flutti 363 þúsund farþega í millilandaflugi í júní og voru þeir 18 prósentum fleiri en í júní á síðasta ári. Segir í afkomuspá IFS að þetta hafi jákvæð áhrif á framlegðina hjá félaginu. Einnig jókst framboð á hótelherbergjum og þrátt fyrir það jókst einnig nýting þeirra. Á hádegi í gær var gengi bréfa í Icelandair 25,15. IFS greining birti verðmat á Icelandair Group í maí, á sama tíma og uppgjör fyrsta ársfjórðungs var kunngjört. Það var þá mat IFS að virði félagsins væri 23,43 á hlut. Nú gerir IFS ráð fyrir að afkoma félagsins verði betri en áður hafði verið talið. Auk fjölgunar farþega og betri nýtingar herbergja er ástæðan einkum sú að talið er að olíuverð eigi eftir að verða lægra en frá síðasta virðismati. Í virðismati Icelandair er fjallað um áhrif væntanlegra flugvélarkaupa á félagið. Gert er ráð fyrir að á árunum 2018-2021 muni Icelandair kaupa 16 nýjar flugvélar og listaverð þeirra sé 1.780 milljónir dala. Þessar vélar séu sparneytnari og muni auka „load factor“ utan háannatíma. „IFS býst við því að hluti af áhættustýringu Icelandair muni felast í því að selja og leigja til baka að minnsta kosti fjórar af þessum nýju flugvélum. Þetta muni draga úr fjárþörf fyrirtækisins,“ segir í virðismati IFS.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira