Greiðslustöðvun Búmanna framlengd ingvar haraldsson skrifar 17. júní 2015 12:00 Búmenn eiga 540 íbúðir á Suðurlandi, Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu. vísir/pjetur
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur framlengt greiðslustöðvun Búmanna til 4. september en félagið fékk upprunalega heimild til greiðslustöðvunar til 5. júní. Í sumar er stefnt að því að leysa úr fjárhagsvanda Búmanna en eigið fé félagsins er neikvætt um hálfan milljarð króna. Búmenn er húsnæðissamvinnufélag þar sem félagsmenn, 50 ára og eldri, kaupa búseturétt í einhverri af 540 íbúðum félagsins og greiða síðan mánaðargjald. Vandi Búmanna felst helst í að félagið er skuldbundið til að kaupa til baka búseturétt ríflega helmings íbúa félagsins. Uppreiknuð skuldbinding Búmanna vegna kaupskyldu nemur 1,58 milljörðum en Búmenn geta ekki greitt hana út. Heildarskuldir Búmanna nema 14,9 milljörðum króna en eignir ríflega 14,3 milljörðum króna. Þá standa einnig yfir viðræður við Íbúðalánasjóð um að sextíu íbúðir, sem ekki hefur tekist að selja búseturétt að, verði færðar yfir í sérstakt leigufélag í eigu Búmanna. „Samhliða því að þessar eignir verði færðar yfir í leigufélagið þá fari fram afskrift á þeim íbúðum séu þær yfirveðsettar,“ segir Daníel Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Búmanna. Gangi þetta eftir mun Íbúðalánasjóður afskrifa lán til Búmanna sem nema hálfum milljarði króna.
Mest lesið Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira