Tilkynnt var um níu hópuppsagnir í fyrra Óli Kristján Ármannsson skrifar 8. janúar 2015 07:00 Af þeim sem misstu vinnuna í hópuppsögnum á nýliðnu ári unnu flestir í fiski og næstflestir í fjármálageiranum. Fréttablaðið/Egill Aðalsteinsson
Fjöldi þeirra sem misstu vinnuna í hópuppsögnum dróst saman um 35,7 prósent milli áranna 2013 og 2014. Alls misstu í fyrra 202 vinnuna í níu hópuppsögnum sem tilkynnt var um, að því er fram kemur í nýbirtum tölum Vinnumálastofnunar. Síðustu ár hefur dregið mjög úr hópuppsögnum eftir hrinu slíkra uppsagna eftir hrun, á árunum 2008 og 2009. Þannig var 25 sinnum fleira fólki sagt upp vinnunni í hópuppsögnum árið 2008 en gerðist á síðasta ári og árið 2009 voru það tæplega níu sinnum fleiri sem misstu vinnuna með þeim hætti. Fram kemur í gögnum Vinnumálastofnunar að frá og með árinu 2008 hafi alls 9.157 manns verið sagt upp í hópuppsögnum, en þrír fjórðu þeirra misstu vinnuna 2008 og 2009, flestir á þriggja mánaða tímabili frá desember 2008 til febrúar 2009 og svo næstu þrjá mánuði þar á eftir.Vinnumálastofnun segir eina tilkynningu hafa borist um hópuppsögn í desember 2014 þar sem sagt var upp 21 starfsmanni í fiskvinnslu. Í hópuppsögnum nýliðins árs eru flestir sagðir hafa misst vinnuna í fiskvinnslu, 52 talsins, eða um 26 prósent allra hópuppsagna. Þar á eftir koma uppsagnir í fjármála- og tryggingaþjónustu sem snertu 50 manns, eða 25 prósent. „Alls komu 279 hópuppsagnir til framkvæmda á árinu 2014, um 107 úr tilkynningum sem bárust á árinu 2014 en um 172 úr tilkynningum sem bárust á árinu 2013,“ segir jafnframt í samantekt Vinnumálastofnunar.
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira